Innlent

Hætta aftur rann­sókn á Múlaborgarmálum

Agnar Már Másson skrifar
„Ríkissaksóknari var því miður ekki með allar upplýsingar í málinu,“ segir lögreglan.
„Ríkissaksóknari var því miður ekki með allar upplýsingar í málinu,“ segir lögreglan. Vísir/Vilhelm

Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi.

Rúv greindi fyrst frá en Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, greinir einnig frá þessu í samtali við Vísi.

„Ríkissaksóknari var því miður ekki með allar upplýsingar í málinu,“ segir Hildur og segir að það sem ríkissaksóknari hafi farið fram á að yrði rannsakað betur hafi þegar verið gert en að þær upplýsingar hafi ekki fyrir í þeim gögnum sem Ríkissaksóknari hafði undir höndum þegar ákvörðunin var tekin.

Með þessu er öllum málum lögreglu sem tengjast Múlaborg nú lokið, að sögn lögreglu.

„Þau fólu okkur að taka [rannsóknina] upp og við gerðum það, en bara að forminu til. Svo lokuðum við málinu aftur,“ bætir Hildur við.

Aðeins var kært í einu máli er tengist Múlaborg en þar féll dómur í maí þar sem hinn tvítugi starfsmaður Hannes Valle Þorsteinsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Greint var frá því í dag að hann hyggðist ekki áfrýja.

Í upphafi höfðu mál sautján barna á leikskólanum verið tekin til skoðunar hjá lögreglunni, foreldrar þrettán barna kærðu meint brot starfsmannsins en rannsókn var hætt hjá tíu þeirra og þrjú send til héraðssaksóknara, sem kærði svo aðeins í máli eins barns.

Foreldrar fjögurra barna kærðu ákvörðun lögreglunnar til ríkissaksóknara og sendi svo saksóknaraembættið þrjú málanna aftur til rannsóknar hjá lögreglu, sem hefur nú sem fyrr segir fellt þær rannsóknir niður að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×