Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 5. júní 2026 15:38 Yfirlýsingin varðar umfjöllun um Edition-málið svokallaða. Vísir/Anton Brink Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana á Edition-hótelinu í Reykjavík í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, sendi nýkaledónskum miðli yfirlýsingu vegna umfjöllunar hans um málið.
Miðillinn Les Nouvelles Calédoniennes fjallaði um manndrápsmál Mancel fyrr á árinu og fjallaði í leiðinni um erfðadeilur fjölskyldunnar. Þær rötuðu fyrir dómstóla þar í landi og voru raktar í umfjöllun miðilsins. Í yfirlýsingu sinni áréttar Ming Ting að manndrápsmálið hér á landi og erfðadeilur fjölskyldunnar séu aðskilin mál. Með því að fjalla um bæði mál í sömu grein sé það látið í veðri vaka að málin tvö tengist. „Ming Ting Mancel hafnar algjörlega öllum ásökunum sem hún er borin og látnir ættingjar hennar í þessari grein. Leiðrétta þarf framsetningu staðreyndanna þar sem staðreyndirnar sem nefndar eru í sambandi við sakamálið á Íslandi tengjast á engan hátt ásökunum um erfðasvik sem systir Emerics Mancel heitins hefur borið fram,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. Þann 14. júní 2025 fundust bæði Emeric og Catherine látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu. Ming Ting játaði fyrst á vettvangi að hafa drepið þau og að hún hefði síðan ætlað að svipta sig lífi en ekki lokið við ætlunarverk sitt. Síðar breytti hún framburðinum og neitar sök. Samkvæmt ákæru á hún ásamt eiginmanni sínum Emeric að hafa haldið henni fastri, meðal annars með því að grípa um hægri upphandlegg hennar. Þá hafi þau brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar. Catherine á vegna þessa að hafa hlotið punktblæðingar í andliti og hálsi auk bráðs yfirþans á lungunum.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira