Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Samúel Karl Ólason skrifar 3. júní 2026 10:08 F-15 herþotur hafa lengi verið notaðar af Bandaríkjamönnum og öðrum ríkjum. Þjóðarðlið Bandaríkjanna/Casey Burruel Bandaríski flugmaður F-15E herþotunnar sem skotin var niður yfir Íran í vor var einnig skotinn niður yfir Kúveit, nokkrum vikum áður. Hann var því tvisvar sinnum skotinn niður á rétt rúmum mánuði, sem fyrrverandi herforingi líkir við að verða tvisvar sinnum fyrir eldingu.
Flugmaðurinn og áhafnarmeðlimur hans voru skotnir niður með loftvarnarkerfi yfir Íran í upphafi aprílmánaðar. Þá fór af stað umfangsmikil björgunaraðgerð. Flugmanninum var bjargað fljótt en vopnakerfasérfræðingur flugvélarinnar fannst ekki strax. Hann lenti langt frá flugmanninum og tók nokkra daga að koma honum til bjargar, þar sem bæði Bandaríkjamenn og Íranir kepptust um að finna hann fyrstir. Sjá einnig: Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Rúmum mánuði áður hafði sami flugmaður verið skotinn niður yfir Kúveit, samkvæmt bandarískum blaðamanni. Þá skaut kúveiskur flugmaður þrjár bandarískar F-15E herþotur niður á mjög skömmum tíma. Svo virðist sem hann hafi gert það fyrir mistök. Sex flugmenn og vopnakerfasérfræðingar sluppu án alvarlegra meiðsla. probably "friendly fire" on 🇺🇸F-15 pic.twitter.com/n5CvKsp78Z— C4H10FO2P ☠️ (@markito0171) March 2, 2026 CBS hefur einnig heimildir fyrir því að um sama flugmanninn sé að ræða. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur vísað fyrirspurnum fjölmiðla vestanhafs til yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum en fyrirspurnum þangað hefur ekki verið svarað. Í samtali við CBS sagði fyrrverandi herforingi í flugher Bandaríkjanna að hann vissi ekki til þess að sami flugmaðurinn hefði tvisvar sinnum verið skotinn niður í sömu átökunum í langan tíma. Það hefði líklega síðast gerst í stríðinu í Víetnam. „Þetta er eins og að verða tvisvar sinnum fyrir eldingu.“
Bandaríkin Íran Kúveit Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira