Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júní 2026 21:29 Ómar mun sem bæjarfulltrúi funda á morgun með stjórn Þórkötlu. Aðsend og Vísir/Vilhelm Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun.
Í pósti til hollvina í dag kom fram að þrátt fyrir skýr ákvæði í samningnum um gistiákvæði hafi hluti hollvina farið gegn ákvæðum samnings og haft fasta búsetu í húsnæðinu. Því sé verið að endurskoða samningana. Í póstinum kemur fram að frá því þetta tilraunaverkefni hófst fyrir um tveimur árum hafi verið gerðir um 290 hollvinasamningar um eignir félagsins og þar af hafi um 150 þeirra gistiheimild sem hafi fyrst verið boðið upp á vorið 2025 og sú heimild hafi verið framlengd nokkrum sinnum, síðast til 31. ágúst 2026. „Því miður hefur nokkuð borið á því að hollvinir virði ekki takmörkun gistiheimildar og hafi þrátt fyrir skýr ákvæði haft fasta búsetu í eignum félagsins,“ segir í póstinum og að í nýjum samningum verði skýr ákvæði um bann við fastri búsetu en einnig afmörkuð með skýrari hætti heimild til að gista í eignunum. „Vinna við útfærslu takmarkananna er í vinnslu en gengið er út frá því að hollvinir gisti að jafnaði ekki fleiri en 12 nætur í hverjum mánuði í eignum Þórkötlu. Til þess að efla öryggi og yfirsýn við rýmingu eignanna verður sett upp skráningargátt á heimasíðu Þórkötlu þar sem hollvinir skulu merkja við hvaða nætur þeir gista í húsum félagsins,“ segir enn fremur í póstinum. Ómar Davíð Ólafsson bæjarfulltrúi í Grindavík segir hollvini komna með nóg af forsjárhyggju yfirvalda og að hann muni ekki láta af baráttu sinni í þágu hollvina fyrr en ásættanleg niðurstaða fæst í málið. Sjá einnig: Enginn meirihluti í Grindavík Tilkynnt var í dag að ný bæjarstjórn væri tekin til starfa og að þau hefðu undirritað samfélagssáttmála um endurreisn bæjarins. Ómar Davíð segir í færslu á Facebook-síðu sinni að eitt af fyrstu verkum nýrrar bæjarstjórnar verði að funda með stjórn Þórkötlu á morgun. Hann ætli að „tala beint úr pokanum“ við stjórnina. „Þeir eru bara að reyna að kæfa okkur alveg,“ segir Ómar Davíð í samtali við fréttastofu. Hann segir fjölda búa í bænum í húsum sem Þórkatla hafi ekki keypt, um 250 manns, og enginn hafi afskipti af þeim eða að því að þau séu flutt aftur heim. Á sama tíma eigi nú eigi að endurskoða hollvinasamningana og takmarka gistinætur þeirra í tólf daga á mánuði. Hann er verulega ósáttur við það og í athugasemdum við færslu hans um málið á Facebook má sjá að fleiri hollvinir eru það líka. Ómar Davíð segir þetta flókið mál fyrir marga. Allir sem eru með hollvinasamning séu með annan samastað en á sama tíma sé fólk að máta sig við bæinn á ný og mögulega búsetu því tilkynnt hafi verið að skólahald eigi að hefjast næsta haust. Slökkva síðasta vonarneistann Hann segir óskýrt í samningi hvað nákvæmlega föst búseta þýðir og er verulega ósáttur við það að þrengja eigi svo að þeim í haust með dagatali, sérstaklega þegar fólk er að hugsa um að koma börnum sínum í skóla í bænum. „Þá erum við náttúrulega alveg að skrúfa fyrir skólagöngu hjá börnum. Þetta er rosalega erfið staða og þeir eru svona eiginlega að slökkva ljósin hérna hjá okkur hægt og bítandi, og slökkva þennan vonarneista sem var hjá fólki að fara að koma heim og hugsa um húsin og slá garðana.“ Ómar segir Hollvini ítrekað hafa kallað eftir því að fá að greiða leigu af húsunum en ekki hafi fengist leyfi fyrir því og að vísað sé til áhættumats. Hann segir Járngerði, hagsmunasamtök Grindvíkinga, með það til skoðunar að leita réttar Grindvíkinga í þessari stöðu. Á vef Grindavíkur kemur fram að nýtt áhættumat hafi verið birt í dag vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Þar er áhætta metin með tilliti til ólíkra hópa og í Grindavík er til dæmis áhættan metin há fyrir nýja íbúa og fólk í viðkvæmri stöðu og ytri aðila og ferðamenn að nóttu til. Annars er áhætta almennt metin meðal í Grindavík. Áhættustig er óbreytt frá fyrra mati. Til að viðhalda tengslum Um hollvinasamninga segir á heimasíðu Þórkötlu að þeir sem geri slíkan samning hafi afnot af húsinu og hafi þá heimild til að nota húsin innan þeirra marka sem eru sett í samningi, meðal þess er heimild til að geyma lausafé í eigninni og sinna viðhaldi og umhirðu eftir hentugleika. Þannig geta seljendur viðhaldið tengslum sínum við húsið og í raun „gætt þess“. Gert er ráð fyrir því að á samningstíma heimsæki hollvinur eignina og sjái hann ekki fram á að gera það lengur en í tólf vikur þurfi hann að láta vita. Þá kemur fram að forsenda viðauka um gistingu er að hollvinasamningur sé í gildi, að öruggt sé talið að gista í eigninni og að eignin sé ekki staðsett á fyrir fram skilgreindu svæði innan Grindavíkur þar sem hætta er talin mikil. Í pósti til hollvina í dag kemur fram að samhliða nýjum samningum í haust muni Þórkatla, í samráði við slökkvilið Grindavíkur, auka öryggis- og eldvarnareftirlit eigna félagsins sem svar við þeim kröfum sem gerðar eru á félagið í tengslum við dvöl hollvina í þeim. Auka aðgengi starfsmanna að íbúðum Þá kemur fram að til skoðunar sé að takmarka heimild hollvina til rafrænnar vöktunar á eignum, með eftirlitsmyndavélum, samhliða því að auka aðgengi starfsmanna Þórkötlu að þeim eignum sem félagið hefur gert hollvinasamning um. Í póstinum kemur í lokin fram að Þórkatla stefni enn á að bjóða fyrrum eigendum að kaupa eignir sínar til baka og að unnið sé að því að gera endurkaupasamninga.
Grindavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Skóla- og menntamál Húsnæðismál Börn og uppeldi Tengdar fréttir Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir allt stefna í nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Margir aðrir möguleikar séu þó í stöðunni, eins og að annað eldstöðvakerfi taki við, þar á meðal Krýsuvíkurkerfið. 18. maí 2026 22:10 Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir Grindavíkurbæ og Grindvíkingum betur borgið án aðkomu ríkisstjórnarinnar. Ráðherrarnir Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland hafi lofað að snúa ekki baki við þeim en ekki efnt þau loforð. 10. apríl 2026 16:55 Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Grindavíkurnefnd mælir ekki með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur á meðan óvissa varir enn í bænum. 10. apríl 2026 14:42 Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjá meira
Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir allt stefna í nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Margir aðrir möguleikar séu þó í stöðunni, eins og að annað eldstöðvakerfi taki við, þar á meðal Krýsuvíkurkerfið. 18. maí 2026 22:10
Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir Grindavíkurbæ og Grindvíkingum betur borgið án aðkomu ríkisstjórnarinnar. Ráðherrarnir Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland hafi lofað að snúa ekki baki við þeim en ekki efnt þau loforð. 10. apríl 2026 16:55
Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Grindavíkurnefnd mælir ekki með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur á meðan óvissa varir enn í bænum. 10. apríl 2026 14:42