Leigufélög gleypi fasteignamarkaðinn Bjarki Sigurðsson skrifar 31. maí 2026 14:01 Baldur Jezorski er fasteignasali. Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn á Íslandi verði ekkert gert til að laga ástandið á markaði að sögn fasteignasala. Hlutfall íbúða í eigu einstaklinga lækkar hratt.
Í dag er 61 prósent íbúðarhúsnæðis í Reykjavík í eigu einstaklinga sem áttu einungis eina íbúð en fyrir tuttugu árum var hlutfallið um 75 prósent. Samkvæmt spá Baldurs Jezorski fasteignasala gæti hlutfallið fallið niður í 34 prósent á næstu fjörutíu árum. Síðustu tuttugu ár hefur magn íbúðahúsnæðis í eigu lögaðila aukist jafnt og þétt. Baldur segir þetta óhugnalegar tölur. „Ástæðan fyrir því að þetta er að gerast er að þetta er einn besti fjárfestingarkosturinn á Íslandi. Það er ekki hægt að benda á leigufélög sem vonda kallinn. Fjölskyldur sem eiga umframpening spyrja fjármálaráðgjafa sinn og hann svarar þeim að setja þetta í steypu,“ segir Baldur. Hér má sjá þróun eignarhalds íbúða í Reykjavík og spá Baldurs fram til ársins 2066. Ómögulegt eftir tvær kynslóðir Svipaða, en mun hægari þróun, má sjá í öðrum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Það þurfi að bregðast við. „Ef nákvæmlega sama þróun heldur áfram eru leigufélögin að fara að eignast allar eignir á Íslandi. Sérstaklega í Reykjavík. Þar er hröð og slæm þróun. Það verður erfiðara fyrir einstaklinga og fyrstu kaupendur að komast inn á markaðinn. Ég held að eftir tvær kynslóðir verði það bara nær ómögulegt. Markaðurinn breytist það mikið að það verði ekki hægt að safna fyrir íbúð, það verði það dýrt að keppa við leigufélögin og fjárfesta,“ segir Baldur. Lífeyrissjóðir hugsi sig um Ríki og sveitarfélög geti lagt sitt af mörkum. „Maður vill aldrei setja einhver boð og bönn en ef við viljum snúa þessari þróun er það helst með því að stíga á bremsuna hjá þessum stóru félögum. Endurskoða skattaívilnanir, það er hvati fyrir einstaklinga sem eiga nokkrar íbúðir að setja þær inn í félög. Lífeyrissjóðirnir mættu líka kannski aðeins stoppa og hugsa hvort þeir vilji taka þessa ávöxtun á kostnað framtíðarfasteignaeigenda. Vilja þeir vera í samkeppni við fyrstu kaupendur næstu kynslóðir eða mögulega búa til kaupleigukerfi,“ segir Baldur.
Fasteignamarkaður Neytendur Húsnæðismál Leigumarkaður Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira