Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Bjarki Sigurðsson skrifar 31. maí 2026 14:01 Baldur Jezorski er fasteignasali. Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn á Íslandi verði ekkert gert til að laga ástandið á markaði að sögn fasteignasala. Hlutfall íbúða í eigu einstaklinga lækkar hratt.
Í dag er 61 prósent íbúðarhúsnæðis í Reykjavík í eigu einstaklinga sem áttu einungis eina íbúð en fyrir tuttugu árum var hlutfallið um 75 prósent. Samkvæmt spá Baldurs Jezorski fasteignasala gæti hlutfallið fallið niður í 34 prósent á næstu fjörutíu árum. Síðustu tuttugu ár hefur magn íbúðahúsnæðis í eigu lögaðila aukist jafnt og þétt. Baldur segir þetta óhugnalegar tölur. „Ástæðan fyrir því að þetta er að gerast er að þetta er einn besti fjárfestingarkosturinn á Íslandi. Það er ekki hægt að benda á leigufélög sem vonda kallinn. Fjölskyldur sem eiga umframpening spyrja fjármálaráðgjafa sinn og hann svarar þeim að setja þetta í steypu,“ segir Baldur. Hér má sjá þróun eignarhalds íbúða í Reykjavík og spá Baldurs fram til ársins 2066. Ómögulegt eftir tvær kynslóðir Svipaða, en mun hægari þróun, má sjá í öðrum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Það þurfi að bregðast við. „Ef nákvæmlega sama þróun heldur áfram eru leigufélögin að fara að eignast allar eignir á Íslandi. Sérstaklega í Reykjavík. Þar er hröð og slæm þróun. Það verður erfiðara fyrir einstaklinga og fyrstu kaupendur að komast inn á markaðinn. Ég held að eftir tvær kynslóðir verði það bara nær ómögulegt. Markaðurinn breytist það mikið að það verði ekki hægt að safna fyrir íbúð, það verði það dýrt að keppa við leigufélögin og fjárfesta,“ segir Baldur. Lífeyrissjóðir hugsi sig um Ríki og sveitarfélög geti lagt sitt af mörkum. „Maður vill aldrei setja einhver boð og bönn en ef við viljum snúa þessari þróun er það helst með því að stíga á bremsuna hjá þessum stóru félögum. Endurskoða skattaívilnanir, það er hvati fyrir einstaklinga sem eiga nokkrar íbúðir að setja þær inn í félög. Lífeyrissjóðirnir mættu líka kannski aðeins stoppa og hugsa hvort þeir vilji taka þessa ávöxtun á kostnað framtíðarfasteignaeigenda. Vilja þeir vera í samkeppni við fyrstu kaupendur næstu kynslóðir eða mögulega búa til kaupleigukerfi,“ segir Baldur.
Fasteignamarkaður Neytendur Húsnæðismál Leigumarkaður Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira