Viðskipti innlent

Af­lýsa sex flug­ferðum vegna áhafnar­skorts

Lovísa Arnardóttir skrifar
Farþegar eru nú á bið í London, Róm og Glasgow auk þeirra sem bíða á Íslandi.
Farþegar eru nú á bið í London, Róm og Glasgow auk þeirra sem bíða á Íslandi. Vísir/Anton Brink

Búið er að aflýsa sex flugferðum Icelandair í dag vegna áhafnaskorts í flugstjórnarklefa. Það staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, í samtali við fréttastofu.

Flugferðunum sem er búið að aflýsa var til og frá Glasgow, Rómar og til Gatwick í London. Ásdís segir Icelandair vinna að því að koma farþegum á sinn áfangastað.

Fjölda flugferða hefur verið aflýst í vikunni vegna áhafnarskorts en flugmenn Icelandair standa í kjaradeilu. Ekki hefur verið boðað til verkfalls en Icelandair segir flugmenn hafa samstillt hætt að selja frídaga, líkt og gerðist í kjaradeilu árið 2014. Flugmenn hafna því og segja ábyrgðina liggja hjá Icelandair. Félagið hafi lagt upp með flugáætlun sem stæði og félli með því að hægt væri að kaupa frídaga af flugmönnum.

Kjaradeilan snýst um vinnuframlag flugmanna og kröfur flugfélagsins um aukinn sveigjanleika. Þar undir falla meðal annars heimildir til að leigja flugvélar með áhöfnum frá öðrum flugfélögum og breytingar á forgangsrétti flugmanna til alls flugs á vegum félagsins.

Funduðu á föstudag

Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) funduðu hjá ríkissáttasemjara í vikunni en viðræður þokast hægt og enn er ekkert samkomulag í sjónmáli. Flugmenn hafa verið samningslausir frá síðasta hausti.

Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Meðal stærstu hluthafa eru íslenskir lífeyrissjóðir sem eiga saman stærri hlut en stærsti einstaki hluthafinn.

Samninganefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, fundaði með samninganefnd Icelandair á föstudag en ekki hefur verið boðað til annars fundar. Fjölmiðlabann hefur verið sett á deiluna og vísa því báðir aðilar á Ástráð Haraldsson ríkissáttasemjara í samtali við fréttastofu. Hann mun boða til næsta fundar um helgina. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair

Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni.

Sendir flug­mönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“

„Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins.

Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi

Enn ber talsvert á milli Icelandair og flugmanna í kjaradeilu félaganna. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu í morgun. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna mönnunarvanda, þar af tveimur í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×