Innlent

Hand­sala sam­starfið og gera Hilmar að bæjar­stjóra

Agnar Már Másson skrifar
Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ og Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ.
Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ og Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ. Vísir/Lýður

Hilmar Gunnarsson úr Sjálfstæðisflokknum verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar í meirihlutasamstarfi sem flokkurinn handsalaði í kvöld við Viðreisn.

Frá þessu er greint í tilkynningu en Hilmar er fyrrverandi ritstjóri bæjarblaðsins Mosfellsings.

Rætt verður við nýjan bæjarstjóra í fréttatíma Sýnar í kvöld.

Í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna 16. maí buðu fimm kjörnir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ Gylfa Þór Þorsteinssyni til formlegra meirihlutaviðræðna, en hann er eini bæjarfulltrúi Viðreisnar í bæjarfélaginu.

Þannig mynda flokkarnir nauman sex manna meirihluta, en alls eru ellefu fulltrúar kjörnir í bæjarstjórn Mosfellsbæjar.

Þessi meirihluti tekur við af fráfarandi meirihluta Framsóknar, Samfylkingarinnar og Viðreisnar og Hilmar tekur við bæjarstjórastólnum af Regínu Ásvaldsdóttur.

Jana Katrín Knútsdóttir, sem skipaði annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, verður formaður bæjarráðs og Gylfi Þór úr Viðreisn verður forseti bæjarstjórnar.

Ný bæjarstjórn Mosfellsbæjar.vísir/sara



Fleiri fréttir

Sjá meira


×