„Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Agnar Már Másson skrifar 27. maí 2026 21:42 Daði Már fjármálaráðherra mun hafa fengið símtal frá nýjum meirihluta á dögunum, að sögn Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins. Samsett Mynd Hildur Björnsdóttir, tilvonandi borgarstjóri Reykjavíkur, segir að nýr meirihluti sé þegar búinn að heyra í Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra í von um að hefja samtal um endurskoðun Samgöngusáttmálans og fjármögnun hans.
Þetta segir Hildur í kvöldfréttum Sýnar. Vísar hún til eins af stefnumálum nýs borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, um að hefja samtal við ríkisstjórn og nágrannasveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um samgöngusáttmálann, fjármögnun hans og framkvæmdarhraða. Spurð hvort þetta stefnumál feli ekki í sér enn frekari tafir á því að leysa úr umferðarvanda á höfuðborgarsvæðinu svarar Hildur að svo sé ekki. „Ef við endurskoðum ekki þennan samgöngusáttmála held ég einmitt að það muni draga verulega úr möguleikum okkar á að ráðast í samgöngubætur vegna þess að fjármögnun þessa sáttmála er svo óljós,“ bætir hún við. „Við höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra um að við viljum eiga þetta samtal við hann,“ sagði Hildur. „Og það verður ánægjulegt að eiga þetta samtal við bæjarstjórana hér á höfuðborgarsvæðinu sem sumir eru nýir og aðrir reynslumeiri.“ Gott að hafa tenginu inn í ráðuneyti Viðreisnar Hún telur að það kunni að hjálpa mjög að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, sé með í meirihlutanum þar sem hennar flokkur er með fjármálaráðuneytið á sínu valdi. „Það hefði getað flækt samtalið enn þá meira ef stjórnarandstöðuflokkar á þingi hefðu þurft að eiga þetta samtal við ríkisstjórnarflokkana. Þannig að ég held að þetta liðki fyrir.“ Oddvitarnir þrír töluðu fyrir því að skera niður einhvers konar fitulag í stjórnsýslu Reykjavíkur. Hildur segir að Róbert Ragnarsson, sem skipar 2. sæti hjá Viðreisn og er fyrrverandi bæjarstjóri Voga og Grindavíkur, muni leiða hagræðingarverkefni borgarstjórnarinnar. „Við ætlum okkur að ráðast í umfangsmiklar hagræðingar í rekstri borgarinnar,“ segir hún og bætir við að borgarstjórnin hafi skýrt umboð til þess að ráðast í niðurskurð, til dæmis með því að fækka millistjórnendum. „Við munum hefja þessa vinnu strax í sumar.“ „Myndi nú ekki kalla þetta friðþægingu“ Það kom til greina að Sjálfstæðisflokkurinn myndi frekar mynda minnihluta með Miðflokknum og skiptar skoðanir voru innan Sjálfstæðisflokksins um þá leið sem flokkurinn ætti að fara. Að lokum var Miðflokknum samt ekki boðið með. „Ég valdi þann meirihluta sem ég taldi bestan fyrir Reykjavík, með breiðari skírskotun og þar sem ríkir mikið traust og trúnaður milli manna,“ segir Hildur. Hún hefur þó boðið Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, að verða forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Ari hefur ekki samþykkt boðið og segist liggja undir feldi. Hann sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar fyrr í dag að það jafngilti ákveðnum svikum við kjósendur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi kosið að mynda meirihluta til vinstri frekar en hægri. „Ég myndi nú ekki kalla þetta friðþægingu,“ svarar hún aðspurð. Heldur vilji hún bæta samstarf meirihluta og minnihluta. „Og í minnihluta erum við með fjöldann allan af öflugu fólki og ég vil geta nýtt þeirra krafta betur. Og ég held að kraftar Ara nýtist vel inni í Orkuveitu Reykjavíkur.“ Hún segir kynntan meirihluta vera betri kost fyrir Reykvíkinga en hún telur þó að Miðflokkurinn muni styðja mörg mál sem meirihlutinn muni leggja fram. Hildur segir að fundur sinn með Verði, fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hafi farið vel. Þar hafi hún kynnt verkefnalista sem verði gerður opinber í næstu viku á verkefnalisti.is. „Og það var standandi lófaklapp. Þannig að það var mikil ánægja og ég finn mikinn stuðning í þeim verkefnum sem eru fram undan.“
Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samgöngumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík Borgarlína Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Sjá meira