Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. maí 2026 16:41 Máté Dalmay leiddi hóp knattspyrnuáhugamanna sem keypti Fótbolta.net í fyrra. Vísir/Diego Ein vinsælasta íþróttafréttasíða landsins, Fótbolti.net, hefur legið niðri í einn og hálfan sólarhring. Eigandi síðunnar segir ástæðuna vera bilun hjá hýsingaraðila í Þýskalandi, búist sé við því að vefurinn verði kominn aftur í loftið fyrir kvöldið þegar spilaðir verða leikir í Lengubikarnum og í Gatorade bikarnum. „
Það hrundi serverinn hjá okkur úti í Þýskalandi og það er verið að setja 24 ár af gagnamagni yfir á annan server og þetta hefur því miður tekið lengri tíma en menn vonuðu, mér skilst að það þurfi að vanda vel til verka svo að ekkert af þessum gögnum glatist,“ segir Máté Dalmay eigandi Fótbolta.net í samtali við Vísi. Hann segir blaðamenn miðilsins hafa gert sitt til að halda uppi þjónustu í gegnum samfélagsmiðla vefsins. Yfir 35 þúsund manns lesi miðilinn á degi líkt og í gær þar sem spilaðir eru leikir í Bestu deildinni í fótbolta. Líklega þarf ekki að kynna vefinn fyrir landsmönnum enda hefur hann verið starfandi í 24 ár, frá 2002 og hefur greint frá úrslitum í fótboltaleikjum í öllum deildum landsins og öðrum fréttum sem tengjast boltanum. Það hlýtur að vera vont fyrir miðilinn að vera úti svo lengi? „Jú, þetta náttúrulega á ekki að gerast. Það verða gerðar einhverskonar ráðstafanir í kjölfarið á þessu til að tryggja að þetta komi ekki fyrir aftur. Það er alltaf þreytt að læra af hlutunum eftir á en það er staðan,“ segir Máté. Villumelding tekur við lesendum Fótbolta.net. Staðan sé sú að búnaður hjá hýsingaraðila í Þýskalandi hafi bilað. Máté segir að allt eigin hinsvegar eftir að vera klappað og klárt fyrir kvöldið. „Það er heil umferð í Lengjudeildinni í kvöld, líka í Gatorade bikar Fótbolta.net, svo við erum spenntir að komast aftur í loftið. Mér er sagt að þetta eigi núna að gerast any minute, í hið minnsta fyrir kvöldið.“
Fjölmiðlar Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira