Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Samúel Karl Ólason skrifar 21. maí 2026 18:47 Tómas Guðbjartsson og Andemariam Beyene eftir að aðgerðina umtöluðu. vísir/vilhelm Tómas Guðbjartsson skurðlæknir sýndi stórfellt gáleysi sem leiddi til tjóns og andláts Andemariams Teklesenbet Beyene. Hann braut lög og reglur um sjúkraskrár og fór gegn læknalögum og fór vísvitandi framhjá yfirmönnum sínum í aðdraganda aðgerðarinnar sem dró Andemariam til dauða. Þá mun Tómas hafa nýtt sér dauðvona mann i viðkvæmri stöðu í auglýsingaskyni og sem tæki til að efla akademískan frama og eigin hagsmuni.
Þetta er meðal þess sem segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli fjölskyldu Andemariams gegn íslenska ríkinu. Sjá einnig: Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði „Þessi háttsemi setti af stað atburðarás sem leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til þess að sjúklingurinn lést,“ segir í dóminum. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ríkið væri bótaskylt vegna dauða Andemariams. Dó þremur árum eftir aðgerð Andemariam, sem var frá Eritreu dó árið 2014, þá 36 ára gamall, þremur árum eftir að plastbarki var græddur í hann vegna krabbameins sem hann var með. Ekkja hans og þrír synir þeirra höfðuðu í upphafi síðasta árs mál gegn ríkinu vegna dauða hans. Í dómi héraðsdóms segir að ótvírætt sé að aðgerðin, sem hafi leitt til erfiðra veikinda og andláts Andemariams hafi valdið fjölskyldu hans verulegum miska og fjártjóni. Aðgerðin var framkvæmd í Svíþjóð þann 9. júní 2011 á Karolinska háskólasjúkrahúsinu en Tómas var læknir Andemariams á Landspítalanum og sendi hann til læknisins Paolo Macchiarini í Svíþjóð. Þetta var fyrsta plastbarkaígræðslan sem hann framkvæmdi en á undanförnum árum hefur hann verið dæmdur í fangelsi vegna sambærilegra aðgerða sem hann framkvæmdi síðar á öðrum. Sjá einnig: Plastbarkalæknirinn hlaut þungan dóm Tómas er sagður hafa þann 12. maí 2011 breytt tilvísun Andemariams til Svíþjóðar til að láta líta út fyrir að „öll önnur læknismeðferð væri fullreynd“ og það hafi verið gert að beiðni Macchiarinis og til að friða sænska siðanefnd. „Svo sem leitt hefur verið í ljós, og getið er m.a. um í sænska refsidóminum og í rannsóknarskýrslunni um plastbarkamálið, var þessi fullyrðing röng og fullvíst þykir að meðferðarlæknirinn Tómas hafi vel vitað það,“ segir í dómnum. Þá segir að í gögnum málsins og í sjúkraskrá Andemariams hafi verið skýr merki um að hann hefði ekki verið í bráðri lífshættu þegar hann fór til Svíþjóðar þann 24. maí. Ekkert neyðarástand hafi verið uppi þar sem súrefnismettun hans hafi verið góð, hann hafi sýnt lítil einkenni, hreyft sig óhindrað og getað ferðast með venjulegu áætlunarflugi. Þá hafi æxlið verið afar hægvaxandi og viðurkennd, gagnreynd líknandi meðferð sem sérfræðingar í Boston hafi lagt til hafi verið raunhæfur kostur. „Það var því engin klínísk þörf á því að kasta honum út í óprófaða, lífshættulega tilraun sem aldrei hafði verið gerð áður.“ Sjá einnig: Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Ennfremur segir í dómnum að Tómas hafi ekki haft samráð við aðra lækna á Landspítalanum við ákvarðanatöku um meðferð Andemariams. Það verði að teljast ámælisvert og í andstöðu við óskráða meginreglu heilbrigðisstéttarinnar. „Þótt engar skrifaðar reglur hafi verið til um tilvísanir sjúklinga til útlanda var það skýr óskráð regla á Landspítala að svo flókin tilfelli væru rædd í þverfaglegu teymi. Þessi regla var staðfest i vitnisburði Bjarna Torfasonar, fyrrum yfirlæknis, fyrir dómi. Tómas, sem er hjarta- og lungnaskurðlæknir, en ekki hóls-, nef- og eyrnalæknir eða krabbameinslæknir, tók einn við ábyrgð á sjúklingnum án þess að ráðfæra sig við yfirlækni sinn, Bjarna Torfason, og hélt honum alfarið utan við málið. Fram kom í vitnisburði fyrrum yfirlæknisins að hann hefði fyrst heyrt af þessu máli í fjölmiðlum og hefði ekkert vitað um erindi Tómasar, undirmanns síns, til Svíþjóðar.“ Lögmaður ríkisins hélt því fram að Tómas hefði verið „grandalaus og blekktur af aðgerðarlækninum Macchiarini,“ eins og segir í dóminum. Það er talið afar ósennilegt og mun samkvæmt dómnum ekki standast við skoðun á tölvupóstum milli læknanna. „Að mati dómsins hlaut Tómasi Guðbjartssyni að vera fyllilega ljóst hvað stóð til. Til marks um það er jafnframt ljóst af samskiptum í tölvupóstum að Tómas hafði sterkan faglegan og akademískan hvata til að fylgja Macchiarini.“ Í dómnum segir að gögn málsins bendi eindregið til þess að faglegur og akademískur metnaður Tómasar hafi ítrekað verið látinn ganga framar hagsmunum og velferð Andemariams. Fékk Andemariam á málþing, skömmu eftir að hann hóstaði blóði Í fyrsta lagi hafi Tómas samþykkt, ásamt Óskari Einarssyni lungnalækni, að vera meðhöfundur vísindagreinar sem birt var í Lancet 10. desember 2011. Þar hafi því ranglega verið haldið fram að Andemariam væri einkennalaus og með nánast eðlilegan öndunarveg fimm mánuðum eftir aðgerð. Það hafi Tómas vitað með vissu að hafi verið fjarri sannleikanum, þar sem Anermariam glímdi við alvarlega og lífshættulega fylgikvilla. Þá segir að eins og bent hafi verið á í skýrslu rannsóknarnefndar sem rannsakaði málið á sínum tíma hafi læknarnir aðeins átt einn boðlegan og siðlegan kost í stöðunni. Það hafi verið að draga nöfn sín af lista meðhöfunda að greininni en það gerðu þeir ekki fyrr en í febrúar 2017, eftir að í ljós kom í sænskum skýrslum að Macchiarini hafði aldrei aflað samþykkis siðanefndar fyrir aðgerðinni. Í öðru lagi hafi Tómas að mati dómsins sýnt af sér ámælisverða háttsemi þegar hann beitti sér fyrir því að Andemariam kæmi fram á málþingi í Háskóla Íslands árið 2012 til að tryggja jákvæða fjölmiðlaumfjöllun. „Þetta var gert þrátt fyrir að Andemariam hefði skömmu áður verið mjög veikur, hóstað blóði og þurft bráðainngrip í Svíþjóð. Tómas notaði þannig dauðvona sjúkling, sem var í viðkvæmri stöðu og algerlega háður honum um eftirlitsmeðferð, í auglýsingaskyni.“ Þetta sýnir að mati dómsins að ekki verði um villst að framganga Tómasar hafi ekki verið afleiðing af afsakanlegum misskilningi heldur kerfisbundið mynstur. Sjúklingurinn og velferð hans hafi verið nýtt sem tæki til að efla akademískan frama og eigin hagsmuni Tómasar. Þá segir í dómnum að með því að greiða veginn fyrir því að sjúklingur í viðkvæmri stöðu hafi verið notaður í „stórhættulega tilraun“, sem skort hafi allan vísindalegan og lagalegan ramma, hafi Tómas brotið gegn dýpsta grunni læknisstarfsins, þeirri kjarnareglu sem rekja má til Hippókratesar, að „valda fyrst og fremst ekki skaða“. „Þetta alvarlega frávik frá alþjóðlegum siðferðisskyldum lækna rennir enn styrkari stoðum undir það mat dómsins að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða. Tjónið af völdum aðgerðarinnar er mikið og ótvírætt og á því ber stefndi [Landspítalinn] skaðabótaábyrgð.“ Héraðsdómur viðurkenndi bótaskyldu ríkisins en hún hefur ekki verið ákveðin enn. Þá er ríkinu einnig gert að greiða málskostnað fjölskyldu Andemariams upp á níu milljónir króna.
Plastbarkamálið Dómsmál Heilbrigðismál Landspítalinn Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Sjá meira