„Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Agnar Már Másson skrifar 18. maí 2026 19:51 „Ég er aðallega að meta þessa tvo kosti: samstarf með Miðflokki annars vegar eða Framsókn og Viðreisn hins vegar. Og ég þarf bara aðeins að melta það.“ Vísir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist aðallega velta fyrir sér meirihlutasamstarfi með Miðflokki annars vegar eða Viðreisn og Framsókn hins vegar. Hún hefur rætt við alla kjörna oddvita í dag en kveðst ekki hafa tekið ákvörðun. Nú ætli hún að tala við sitt fólk um stöðuna sem upp er komin.
Hildur fundaði í dag með oddvitum allra flokka sem náðu inn manni í borgarstjórn. Tveir líklegir tólf manna meirihlutar hafa teiknast upp í borgarstjórn, eins og Hildur hefur sagt; annaðhvort hreinn hægri meirihluti Miðflokks og Sjálfstæðisflokks eða miðhægri meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar. „Mér finnst bara ágætt að við setjumst öll niður eftir þessar kosningar. Við erum augljóslega að fara að vinna saman næstu fjögur árin og hvernig sem þetta lendir, meirihluti eða minnihluti, þá er heilmikið samstarf milli flokka,“ sagði Hildur í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar. „Þannig að við vorum bara aðeins að ræða hvernig við ætlum að hafa kjörtímabilið,“ bætir hún við og bendir á að gríðarleg nýliðun sé í borgarstjórn eftir kosningarnar; 16 af 23 borgarfulltrúum komi nýir inn. Ný borgarstjórn Reykjavíkurvísir/hjalti Ari fyrstur, Silja seinust Ari Edwald úr Miðflokki var fyrstur á fund Hildar í dag, svo Björg Magnúsdóttir úr Viðreisn, síðan Einar Þorsteinsson úr Framsókn, síðan Sanna Magdalena Mörtudóttir úr Vinstrinu, Pétur Hafliði Marteinsson úr Samfylkingu og að lokum Silja Sóley Birgisdóttir úr Sósíalistaflokknum. „Það er ekkert að lesa sérstaklega í þessa röð. Það fór bara eftir því hvenær fólk var laust,“ sagði Hildur, sem kveðst nú ætla að melta stöðuna. „Mér fannst bara gott hljóðið í fólki og mikill hugur í því að gera þetta vel.“ Frá kosninganóttinni í ráðhúsinu. Hún segir skemmtilegt að það séu sameiginlegir fletir með öllum flokkum, en auðvitað séu „stærri og meiri“ fletir með Miðflokknum, Viðreisn og Framsókn. Tvær vikur til stefnu En með hverjum ætlar Hildur að vinna? „Ég hef ekki tekið ákvörðun,“ svarar hún. „Ég er aðallega að meta þessa tvo kosti: samstarf með Miðflokki annars vegar eða Framsókn og Viðreisn hins vegar. Og ég þarf bara aðeins að melta það.“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sem sést hér fyrir miðju, ásamt Silju Sóley Birgisdóttur úr Sósíalistaflokknum og Kristinni Jóni Ólafssyni í Pírötum.Vísir/Vilhelm Gert er ráð fyrir því að fyrsti borgarstjórnarfundur nýrrar borgarstjórnar verði haldinn 3. júní og vonast hún til þess að meirihluti verði myndaður fyrir það. „Þannig að við nýtum bara þann tíma sem við höfum og vöndum til verka.“ Einar: Hildur stýrir umfjölluninni Vísir sló á þráðinn til Einars Þorsteinssonar í Framsókn en hann vildi ekkert tjá sig um málið. „Hildur stýrir umfjöllun um þetta og ég get eðli málsins samkvæmt ekkert tjáð mig um það,“ sagði Einar, sem vildi heldur ekkert segja hvort sér hefði verið boðið á annan fund. Ekki hefur náðst í Björgu Magnúsdóttur eða Ara Edwald við vinnslu fréttar. Einar Þorsteinsson og Milla Ósk yfirgefa Ráðhúsið á kosninganótt.Vísir/Vilhelm Staðan snúin þó Hildur þyki hafa spilin á sinni hendi Stjórnmála- og stjórnsýslufræðingurinn Gunnar Sigurðarson rýndi í stöðuna í kvöldfréttum. „Þó að það blasi við að hún sé með öll spil á hendi þá er þetta samt snúið hjá henni,“ segir hann. „Augljósasta dæmið er Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur, en kjósendur beggja flokka létu mjög skýrt í ljós að þeir vildu mynda borgaralega stjórn saman.“ En á móti kemur að nokkur lítill meðbyr sé með Miðflokknum fyrir utan sjálfan flokkinn, eins og Gunnar bendir á. „Hvort hún ætli að taka þann séns að vera með flokki sem er óvinsæll fyrir utan þessa tvo, verður tíminn að leiða í ljós.“ Hans getgáta er að Sjálfstæðisflokkurinn velji miðjuflokkana fram yfir Miðflokkinn. En ef Sjálfstæðisflokkur velur frekar Miðflokkinn er ekki ómögulegt, að sögn Gunnars, að Framsókn og/eða Viðreisn bætist við í samstarfið og myndi þannig 13 eða jafnvel 15 manna meirihluta. „Og hafa þetta bara allsherjarpartí,“ segir Gunnar. „En við verðum að horfa til þess að þetta er Sjálfstæðisflokkurinn í borginni. Honum finnst ekkert rosalega gaman að vera í partíi með öðrum flokkum. Hann vill helst vera einn, og ef það er ekki þá vill hann helst bara vera með einn makker.“ Hann kveðst ekki muna eftir því að Sjálfstæðismenn hafi farið í stjórn með tveimur flokkum.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Sósíalistaflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Sjá meira