Þurfi ekki mikið til að hreyfingar verði í Reykjavík Kolbeinn Tumi Daðason og Eiður Þór Árnason skrifa 15. maí 2026 20:30 Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson rýndu í stöðuna. Sýn Miklar hreyfingar eru á fylgi flokkanna í Reykjavík samkvæmt síðustu könnun Gallup fyrir kosningar. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit á morgun er núverandi meirihluti fallinn og verður ekki hægt að mynda annan meirihluta til vinstri.
Magnús Sigurbjörnsson, hlaðvarpsstjórnandi og fyrrverandi framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins, og Pétur Krogh Ólafsson, hlaðvarpsstjórnandi og fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, ræddu stöðuna í kvöldfréttum Sýnar. Saman stýra þeir hlaðvarpinu Korter í kosningar. Í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup sem RÚV greindi frá í dag mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 31,3% fylgi, Samfylking með 21,5%, Vinstrið í 11,3%, Miðflokkur 10,9%, Viðreisn 9,8%, Sósíalistar með 4,8%, Framsókn 4,7%, Píratar 2,3% og Flokkur fólksins 2,3% og aðrir minna. „Sjálfstæðisflokkurinn er með átta fulltrúa þarna og 31,3 prósent og bætir svona talsvert við sig milli Gallup-kannana. Það er kannski svona mesta hreyfingin og maður sér það í rauninni að flokkurinn hefur rekið góða baráttu í Reykjavík og það er stemning í Sjálfstæðisflokknum,“ segir Magnús. Pétur bendir á að flokkarnir sem myndi núverandi meirihluta mælist með níu fulltrúa við hliðina á átta fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Meirihlutinn sé því greinilega kolfallinn. „Þeir flokkar sem eru ekki hluti af meirihlutanum núna eru með fjórtán. Þannig að það eru að verða einhver stakkaskipti núna í Reykjavík og maður sér alveg að Sjálfstæðisflokkurinn er rosa feginn að finna loksins meðbyr og stemningu eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu.“ Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn raunhæfasti kosturinn Tólf borgarfulltrúa þarf til að mynda meirihluta. Magnús telur að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn séu eini raunhæfi þriggja flokka meirihlutinn miðað við orðræðu fulltrúa þeirra. Samkvæmt könnun Gallups gætu Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur einnig myndað þriggja flokka meirihluta með Viðreisn. „En við sjáum það að það er ekki langt í næsta mann Samfylkingarinnar inn á kostnað þriðja manns Miðflokksins. Það er alveg fljótt að breytast fylgið og það þarf ekki mikið til í Reykjavík svo það verði hreyfingar,“ segir Magnús. Viðreisn mældist lengi með þrjá fulltrúa en er með tvo í könnun Gallup. Þetta gæti gert það að verkum að Framsóknarflokkurinn verði í sterkari stöðu þegar kemur að meirihlutamyndun í borginni. Sjálfstæðisflokkurinn yfirleitt sterkari á kjördag „Það er kannski ágætt að benda á að þessi tiltekna Gallup-könnun sem kemur þarna inn fyrir kjördag er ofboðslega mikilvæg og er alltaf langnæst því fylgi sem kemur svo upp úr kjörkössunum,“ segir Pétur. Sögulega séð hafi Sjálfstæðisflokkurinn fengið aðeins meira upp úr kjörkössum en þessi síðasta könnun fyrir kjördag hefur gefið til kynna og Samfylkingin minna. Ef horft er til annarra sveitarfélaga í Kraganum þá telja báðir að vert sé að fylgjast með Seltjarnarnesi. „Það er mikil spenna á Seltjarnarnesi og líka úti um allt. Mér finnst svolítið áhugavert að sjá Garðabæ, hvernig hlutirnir þróast þar. Þar hefur náttúrlega Sjálfstæðisflokkurinn verið í meirihluta og er bara með gríðarlega sterka stöðu og maður heyrir að það sé líka mjög góður andi í Garðabænum,“ segir Magnús. Staðan áhugaverð í Vestmannaeyjum Pétur horfir einnig til Kópavogs sem er næststærsta sveitarfélagið. „Þó að Sjálfstæðisflokkurinn verði mögulega langstærstur þar þá er ekkert útilokað að myndaðir verði meirihlutar án hans.“ Magnús telur að það yrði ekki góð staða. „Framsókn í Kópavogi er kannski ekki alveg að fljúga vel og þá er spurning hvað Ásdís [Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi] gerir því hún fær örugglega ekki hreinan meirihluta þar. En það gengur vel allavega í Kópavogi,“ segir Magnús. Ef horft er út fyrir höfuðborgarsvæðið þá telur Magnús áhugavert að fylgjast með Vestmannaeyjum. „Þar eru tveir flokkar svona aðeins búnir að græða sárin og Sjálfstæðisflokkurinn býður fram sterkan lista þar, þannig að hvort hann nái hreinum meirihluta aftur er áhugavert að sjá.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Reykjavík Tengdar fréttir Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri. 15. maí 2026 18:04 Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Innlent Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Innlent „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Innlent Fleiri fréttir Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmum 1,2 milljónum Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu „Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn“ „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Sjálfstæðismenn á flugi Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Gæsluvarðhald fósturföðurins framlengt um tvær vikur Skálmöld hafði betur fyrir dómi Útstrikanir gætu haft áhrif en þær virka svona „Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra“ Kosning um sameiningu sveitarfélaganna ógild „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Selalaug og tilmæli um barnaafmæli gæluverkefni sem mætti slaufa Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Ragna Bjarnadóttir nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Vara við fölsuðu Xanax í dreifingu „Auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangast“ Um þrjátíu þúsund kosið utankjörfundar Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Hnífjafnt til hægri og vinstri Útboði lokið og ný líkbrennsla tekin í notkun við lok 2027 Hvernig meirihluta vilja borgarbúar sjá? Arndís Anna til Bifrastar Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Sjá meira
Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri. 15. maí 2026 18:04