Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. maí 2026 20:01 Sebastian Óli Guðmundsson er samfélagsmiðlafréttamaður hjá Rúv. Ofbeldi og gervigreind hafa sett mark sitt á kosningarnar og er hart barist um atkvæði ungmenna á TikTok. Samfélagsmiðlafréttamaður segir nálgunina ekki vænlega til árangurs.
Samfélagsmiðlar hafa heldur betur sett sitt mark á kosningabaráttuna og kappkosta flokkar að ná athygli á TikTok. Við ræddum við Sebastian Óla Guðmundsson, samfélagsmiðlafréttamann hjá Ríkisútvarpinu, til að skilja hvers vegna flokkarnir leggja svo mikið upp úr TikTok og hvort það sé vænlegt til árangurs. „Ég held að fólk hafi gaman af ýmsum flokkum, ýmsu efni hjá flokkum. En margt af þessu er ekki að fara vel í mannskapinn og það er margt af þessu frekar leiðinlegt og fólki finnst það ekki skemmtilegt. Við vitum að sveitarstjórnarkosningar eru kosningarnar sem ungt fólk tekur minnst þátt í af hinum. Ef þú ert flokkurinn sem nærð ungu manneskjunni inn til að kjósa þig þá gæti það bara verið algjör leikbreytir. Þetta eru fullt af atkvæðum, fólk sem hefði kannski ekki kosið. Ef þú nærð til þeirra gæti það gert gæfumuninn,“ segir Sebastian en hér fyrir neðan má sjá brota brot af því efni sem flokkarnir hafa deilt á TikTok. Ofbeldi og gervigreind hafa einnig sett svip sinn á kosningabaráttuna. Hér gengur ungur Miðflokksmaður í skrokk á svokölluðum libba og síðan birti oddviti Flokks fólksins þetta myndband af sér að dansa með formanni flokksins áður en hann lumbrar á oddvita Samfylkingarinnar. „Mér finnst það furðuleg leið að fara, ég myndi ekki styðja það og ég myndi ekki samþykkja það ef einhver í flokknum mínum myndi gera eitthvað tengt ofbeldi. Ég held að fólk taki alls ekki vel í það. Kannski hlær einhver að því en ég held að þetta falli ekki vel í kramið hjá neinum. Ýmis notkun á gervigreind til dæmis upp á síðkastið, ég held að það sé ekki að skila sér til fólks.“ Hann tekur fram að einn flokkur beri af í baráttunni um TikTok. „Það er Miðflokkurinn, þeir hafa Ara Edwald í fyrirsvari og láta hann tala um stefnuna. Hann gerir það skemmtilegt og gerir það á tungumáli unga fólksins. Ef þið horfið á myndbandið hans, fer hann beint í þetta og er með húkk í byrjun. Eitt annað, ef þið fylgist með myndavélinni, þá hættir hún ekki á hreyfingu, hún er stanslaust á hreyfingu. Þannig eru þeir að reyna ná athyglinni þinni. Hann er með húmor fyrir sjálfum sér sem er líka svo mikilvægt. Fólk tengir við það á persónulegu nótunum. Það tengir við hann. Hérna er hann líka að tala tungumál unga fólksins, það er rjúpan,“ segir Sebastian en rjúpan vísar til Monster-orkudrykks af hvítu gerðinni. Spurður hvaða feilspor flokkar eru að stíga og þannig ekki hitta í mark hjá ungu fólki segir Sebastian: „Meðal annars að hafa alltof marga í mynd, hafa alltof löng myndbönd, alltof lengi að koma sér að efninu. Það er svolítið mikilvægt á samfélagsmiðlum að koma fyrstu sekúnduna með eitthvað. Af því ég held að ungmenni gefi manni bara lítinn sjéns. Ef þú ert of lengi að koma þér að efninu eru þau búin að kruna.“ Þá hafa gamlar áskoranir og tískutrend sem flestir héldu að væri búið að leggja til hvílu aftur skotið upp kollinum í kringum kosningar. Þar má nefna klakabalaáskorunina sem tröllreið öllu á netheimum fyrir tólf árum og hefur átt ólíklega endurkomu. „Það kom mér á óvart en ég hef gaman af því. Ég hef alltaf gaman af svona skemmtun. Þetta er fín lína, því þetta þarf að vera skemmtilegt en það þurfa líka að vera einhverjar upplýsingar. Hvað, þetta er tólf ára gamalt? Það kom á óvart að sjá þetta aftur en auðvitað er bara gaman af því.“ Hann bætir við að gaman væri að sjá flokka halda áfram að sinna ungu fólki eftir kosningar. „Núna allt í einu tveim, þremur vikum fyrir kosningar og koma allir flokkarnir og allir sem eru oddvitar og allir sem bjóða sig fram, allt í einu koma þeir allir á sama tíma inn og eru að birta myndbönd í gríð og erg. Fólkið fer svolítið út af rútunni sinni þannig og það kemur bara flatt upp á það allt í einu. Ég held að þau hafi ekki gaman af því að fá þetta svona allt í einu. Síðan bara hættir þetta alveg og þau fá ekki að vita neitt bara næstu ár. Þetta lítur út eins og ódýr tilraun til að fá atkvæði og síðan er þeim bara alveg sama.“
Samfélagsmiðlar TikTok Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Sjá meira