Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar 13. maí 2026 15:15 Einu sinni var grænn trefill...Þetta gæti verið upphafið á notalegu ævintýri og að mörgu leyti er sá græni trefill það sem ég ætla að segja frá. Fyrir margt löngu lögðu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu fram hugmynd að grænum trefli/göngustíg á hálsum við efri mörk byggða – allt frá Esjunni að Hafnarfirði eða um 50 km. Dásamlegt útivistarsvæði í fjölbreytti náttúru – hraunbreiður, votlendi, skógur og kjarr. Samið var við Skógrækt ríkisins um gróðursetningu í umhverfi stígsins. Eins og í ævintýrum urðu á vegi græna trefilsins áskoranir, en núna er góður gangur í framkvæmdum. Þetta verður einstakt skógræktar- og útivistarsvæði fyrir öll sveitarfélögin. Merki um góða samvinnu milli sveitarfélaga, sem að auki stuðlar að heilbrigðum lífsstíl íbúa. Græni trefillinn er þó fyrst og fremst framsýnt skipulagsverkefni, skipulag sem gefur lífinu gildi. Margt er gott og fallegt í Reykjavík. Ég efast um að nokkur höfuðborg geti boðið upp á eins mikla fjölbreyttni í náttúru og athafnasvæðum fyrir íbúa til að njóta. Frá göngu á hæðum eða hálsum umhverfis borgina getum við borgarbúar gengið meðfram Elliðaánum og skoðað fossa og flúðir og með heppni sé lax stökkva. Í göngu meðfram ströndu í tignarlegu umhverfi er ánægjulegt að virða fyrir sér auðugt fuglalífið og einnig má sjá seli lóna fyrir landi. Óborgarleg lífsgæði. Fiðringur fer um fætur margra á björtum vetrardögum – þegar ljós glitra í hlíðum Bláfjalla. Fyrir utan að vera falleg sjón er stórkostlegt að eiga slíka útivistarparadís að vetri í nágrenni borgarinnar. Þegar gras grær að vori á golfvöllum borgarinnar lifnar yfir mörgum og þau þurfa ekki lengur að fara annað til að iðka högg sín til að hitta holur. Þá veitir græni trefillinn skjól fyrir hesta og menn á útmánuðum. Í öllum okkar gerðum þurfum við að huga að þessum auðlindum og gæta þeirra. Tökum undir orð Einars Þorsteinssonar um að margt er gott og fallegt í Reykjavík, en annað er klúðurslegt og því viljum við breyta. Komum Reykjavík á grænt ljós umvafða grænum trefli. Höfundur er fyrrum borgarfulltrúi, þingmaður, ráðherra og skipar 46. sætið á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Framsóknarflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Einu sinni var grænn trefill...Þetta gæti verið upphafið á notalegu ævintýri og að mörgu leyti er sá græni trefill það sem ég ætla að segja frá. Fyrir margt löngu lögðu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu fram hugmynd að grænum trefli/göngustíg á hálsum við efri mörk byggða – allt frá Esjunni að Hafnarfirði eða um 50 km. Dásamlegt útivistarsvæði í fjölbreytti náttúru – hraunbreiður, votlendi, skógur og kjarr. Samið var við Skógrækt ríkisins um gróðursetningu í umhverfi stígsins. Eins og í ævintýrum urðu á vegi græna trefilsins áskoranir, en núna er góður gangur í framkvæmdum. Þetta verður einstakt skógræktar- og útivistarsvæði fyrir öll sveitarfélögin. Merki um góða samvinnu milli sveitarfélaga, sem að auki stuðlar að heilbrigðum lífsstíl íbúa. Græni trefillinn er þó fyrst og fremst framsýnt skipulagsverkefni, skipulag sem gefur lífinu gildi. Margt er gott og fallegt í Reykjavík. Ég efast um að nokkur höfuðborg geti boðið upp á eins mikla fjölbreyttni í náttúru og athafnasvæðum fyrir íbúa til að njóta. Frá göngu á hæðum eða hálsum umhverfis borgina getum við borgarbúar gengið meðfram Elliðaánum og skoðað fossa og flúðir og með heppni sé lax stökkva. Í göngu meðfram ströndu í tignarlegu umhverfi er ánægjulegt að virða fyrir sér auðugt fuglalífið og einnig má sjá seli lóna fyrir landi. Óborgarleg lífsgæði. Fiðringur fer um fætur margra á björtum vetrardögum – þegar ljós glitra í hlíðum Bláfjalla. Fyrir utan að vera falleg sjón er stórkostlegt að eiga slíka útivistarparadís að vetri í nágrenni borgarinnar. Þegar gras grær að vori á golfvöllum borgarinnar lifnar yfir mörgum og þau þurfa ekki lengur að fara annað til að iðka högg sín til að hitta holur. Þá veitir græni trefillinn skjól fyrir hesta og menn á útmánuðum. Í öllum okkar gerðum þurfum við að huga að þessum auðlindum og gæta þeirra. Tökum undir orð Einars Þorsteinssonar um að margt er gott og fallegt í Reykjavík, en annað er klúðurslegt og því viljum við breyta. Komum Reykjavík á grænt ljós umvafða grænum trefli. Höfundur er fyrrum borgarfulltrúi, þingmaður, ráðherra og skipar 46. sætið á lista Framsóknar í Reykjavík.
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar