Körfubolti

Ár­mann fær þrjá­tíu árum yngri þjálfara

Sindri Sverrisson skrifar
Friðrik Hrafn Jóhannsson verður á hliðarlínunni í Laugardalshöll næsta vetur.
Friðrik Hrafn Jóhannsson verður á hliðarlínunni í Laugardalshöll næsta vetur. Ármann

Hinn 29 ára gamli Friðrik Hrafn Jóhannsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennaliðs Ármanns í körfubolta, til næstu þriggja ára.

Friðrik tekur við liðinu af hinum 59 ára gamla Karli Guðlaugssyni sem látið hefur af störfum sem bæði þjálfari kvennaliðs Ármanns og formaður körfuknattleiksdeildar félagsins.

Friðrik tekur við Ármanni í 1. deild eftir að liðið féll nokkuð naumlega úr Bónus-deildinni í vor, eftir að hafa leikið þar í fyrsta sinn í 65 ár.

Friðrik er uppalinn á Sauðárkróki og lék þar upp alla yngri flokka. Á þjálfaraferli sínum hefur hann verið aðstoðarþjálfari í efstu deild karla hjá Haukum, ÍA og Tindastól ásamt því að þjálfa yngri flokka hjá félögunum.

Í tilkynningu Ármenninga segir að þeir séu afar stoltir af því að Friðrik taki sín næstu skref í þjálfun í Laugardalnum og að þeir hafi mikla trú á honum.

„Félagið hefur alla tíð viljað skapa sér þá sérstöðu að gefa ungum leikmönnum tækifærið innan vallar til að blómstra og taka næstu skref. Það er því mikið fagnaðarefni að geta gefið ungum þjálfurum sama tækifærið. Við bjóðum Friðrik hjartanlega velkominn til félagsins og væntum mikils af samstarfinu,“ segir í tilkynningunni þar sem stefnan er jafnframt sett á að snúa aftur upp í efstu deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×