Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2026 11:33 Luka Doncic klæðist ekki slóvenska landsliðsbúningnum í sumar. getty/Stefanos Kyriazis Luka Doncic, leikmaður Los Angeles Lakers, mun ekki leika með slóvenska körfuboltalandsliðinu í sumar þar sem hann stendur í forræðisdeilu.
Doncic og slóvenska fyrirsætan Anamaria Goltes slitu trúlofun sinni fyrr á þessu ári. Þau höfðu verið par í áratug og eiga tvær dætur saman. „Ég elska dætur mínar meira en allt og þær verða alltaf í fyrsta sæti í mínu lífi,“ skrifaði Doncic á Instagram þar sem hann greindi frá þeirri ákvörðun sinni að spila ekki með slóvenska landsliðinu í sumar. „Þar sem ég vinn að því að fá sameiginlegt forræði yfir dætrum mínum hef ég neyðst til að taka erfiða ákvörðun um að ferðast og spila með slóvenska landsliðinu eða vera með dætrum mínum í sumar. Því miður hefur verið erfitt fyrir mig að sjá þær undanfarna átta mánuði. Ég hef gefið allt mitt til að spila fyrir Slóveníu og ég er vonsvikinn að geta ekki spilað fyrir þjóð mína í sumar. En núna eru dætur mínar og skyldur mínar sem faðir í forgangi.“ Luka Doncic announces he will not play for the Slovenian national team this summer as he continues to work towards joint custody of his two daughters. pic.twitter.com/6ai5WQiLhb— NBA on ESPN (@ESPNNBA) May 12, 2026 Goltes og dætur þeirra Doncic eru heima í Slóveníu og hann átti ekki kost á því að hafa þær hjá sér í Bandaríkjunum meðan á tímabilinu í NBA stóð. „Ég elska dætur mínar meira en nokkuð annað og ég hef gert allt sem ég get svo þær geti verið hjá mér í Bandaríkjunum yfir tímabilið en það hefur ekki verið mögulegt. Svo nýlega tók ég þá erfiðu ákvörðun að slíta trúlofun minni,“ sagði Doncic í yfirlýsingu til ESPN í mars. Yngri dóttir Doncic og Goltes, Olivia, fæddist í desember á síðasta ári. Doncic var viðstaddur fæðinguna í Slóveníu og á fæðingardeildinni óskaði hann eftir að taka eldri dóttur sína, Gabrielu, með þegar hann færi aftur til Bandaríkjanna. Goltes varð ekki við þeirri beiðni, þau rifust og samkvæmt ESPN hringdi hún í kjölfarið á lögregluna. Engir eftirmálar urðu þó af því. Doncic ku ekki hafa séð dætur sínar síðan í desember en hann freistar þess að fá sameiginlegt forræði yfir þeim. Lakers féll úr leik í undanúrslitum Vesturdeildar NBA fyrir Oklahoma City Thunder í nótt. Meistarar OKC unnu einvígi liðanna, 4-0. Doncic lék ekkert með Lakers í úrslitakeppninni vegna meiðsla aftan í læri. Doncic var stigahæstur í NBA í vetur með 33,5 stig að meðaltali í leik. Hann tók einnig 7,7 fráköst og gaf 8,3 stoðsendingar. Doncic hefur leikið með Lakers frá því í febrúar í fyrra en félagið fékk hann þá í skiptum frá Dallas Mavericks.
NBA Ástin og lífið Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Fleiri fréttir Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Sjá meira