Enski boltinn

Sekt City stað­fest: Trufluðu rann­sókn og svindl upp á 140 milljarða

Valur Páll Eiríksson skrifar
Manchester City var opinberlega dæmt sekt í dag vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Refsing hefur ekki verið ákvörðuð.
Manchester City var opinberlega dæmt sekt í dag vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Refsing hefur ekki verið ákvörðuð. Vísir/getty/Mark Cosgrove

Enska úrvalsdeildin sendi síðdegis frá sér yfirlýsingu þar sem sekt Manchester City í máli sem viðkemur brotum á fjármálareglum er staðfest. Málið hafði lekið út á föstudaginn var. Dómur deildarinnar er harðorður í garð félagsins.

Óháð nefnd var skipuð af ensku úrvalsdeildinni sem kvað upp dóm sinn í dag. Manchester City var fundið sekt í öllum ákæruliðum sem tengjast „alvarlegum brotum á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar yfir níu ára tímabil“, líkt og segir í dómi sem birtur var á heimasíðu ensku úrvalsdeildarinnar.

Þá var City fundið sekt í meirihluta ákæruatriða er snerta á skorti á samvinnu við rannsókn deildarinnar á málinu.

Brot á fjármálareglum deildarinnar voru ýmisskonar. Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar komst að því að Manchester City hafi á tímabilinu 2009/10 til 2017/18:

  • Manchester City gerði „sýndarsamninga“ (e. sham agreements) (sem gáfu ranga mynd af raunverulegu samkomulagi milli aðila) við fjölda viðskiptafélaga sinna, auk þess að reiða sig á „sýndarsamninga“ við aðra, til að blása upp tekjur félagsins á fölskum forsendum og draga úr kostnaði þess.
  • Félagið skilaði inn röngum reikningum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu sinni fyrir endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar.
  • Manchester City braut verulega gegn eyðslumörkum bæði ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA.
  • Við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar braut Manchester City ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og fyllsta trúnað gagnvart deildinni (þrjú af fjórum meintum brotum voru staðfest).

Nefnd ensku úrvalsdeildarinnar komst að þeirri niðurstöðu að Manchester City hafi gert fjölda sýndarviðskiptasamninga við styrktaraðila sína. Tekjur frá styrktaraðilum voru blásnar upp og Abu Dhabi United Group Investment & Development (ADUG), eigandi Manchester City, greiddi mismuninn.

Enn frekari sýndarráðstafanir sem þessar voru gerðar og City hafi búið til svokallað „sýndarhringrásarfyrirkomulag“ með fyrirtækinu Fordham, aðila sem keypti ímyndarrétt leikmanna félagsins, sem var í raun fjármagnað af eigandanum ADUG.

Tilgangur þessara áætlana hafi verið að blása tekjur félagsins upp á fölskum forsendum. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að dregið hafi verið úr uppgefnum kostnaði um meira en 900 milljónir punda, 144 milljarða króna, til þess að uppfylla fjármálareglur.

Félagið skilaði inn röngum reikningum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu þess fyrir bæði endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar.

Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að „með framferði sínu hafi félagið greinilega ætlað að sniðganga reglur ensku úrvalsdeildarinnar“.

Með þessu hafi Manchester City komist hjá reglum um fjárhagslega háttvísi. Hefði City gefið réttar tölur upp við eftirlitsaðila hefði það brotið gegn eyðslumörkum, bæði ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA, „um verulega upphæð“.

Þá segir einnig að í fjögurra ára rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar hafi Manchester City brotið ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og fyllsta trúnað gagnvart deildinni. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði „gert samstilltar tilraunir til að stöðva og hindra rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×