„Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Siggeir Ævarsson skrifar 11. maí 2026 22:00 Danielle Rodriguez og stöllur hennar í Njarðvík eru aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. Vísir/Anton Brink Danielle Rodriguez var mætt í viðtal til Andra Más strax að leik loknum í Njarðvík í kvöld þar sem heimakonur komust í 2-0 í einvígi liðsins um Íslandsmeistaratitilinn gegn Haukum.
Leikurinn var afar jafn og spennandi allan tímann en Njarðvík skoraði sjö síðustu stigin í leiknum og vann að lokum fimm stiga sigur, 75-70. Dani gat eiginlega ekki svarað því hvernig Njarðvíkingum tókst að kreista sigurinn fram í jöfnum leik. „Ég er hreinlega ekki viss! En mér fannst við spila frábæra vörn en Haukar eru með marga leikmenn sem geta ógnað sóknarlega. Við náðum að stilla okkur vel inn í vörninni, náðum nokkrum stórum varnarfráköstum og settum svo nokkur stór skot. Þetta var leikur sem reyndi vel á og ég held að bæði lið séu algjörlega uppgefin.“ Varnarleikur Njarðvíkur var traustur í kvöld, þá sérstaklega undir lokin, og Dani sagði að Njarðvíkingar hefðu lært mikið af síðustu seríu um það hvernig það á að spila vörn gegn öflugu sóknarliði. „Við komum bara með hausinn rétt stilltan. Serían gegn Grindavík hjálpaði okkur að finna taktinn varnarlega því þær eru líka með marga góða sóknarmenn og við þurftum að setja fulla einbeitingu á varnarleikinn og mér finnst það hafa skilað sér áfram í þetta einvígi. Að setja fullan fókus á harða og líkamlega vörn.“ Stóru skotin duttu Njarðvíkurmegin að þessu sinni. „Ég held að við höfum bara sett fleiri stór skot en þær. Stundum rúllar boltinn ofan í og stundum rúllar hann upp úr, og við hittum bara aðeins betur en þær í lokin.“ Brittany Dinkins var frábær í liði Njarðvíkur í kvöld, skoraði 30 stig og bætti við níu fráköstum og þremur stoðsendingum. Andri spurði Dani hvernig það væri að spila með leikmanni eins og Britt. „Það er magnað. Ég spilaði á móti henni hérna á Íslandi fyrir mörgum árum. Hún er ótrúlegur leikmaður og gerir mér auðveldara fyrir á vellinum og ég vona að ég geri það sama fyrir hana og það hefur verið algjörlega magnað að spila með henni.“ Njarðvíkingar eru í algjörri lykilstöðu í einvíginu eftir sigurinn í kvöld og aðeins einum sigri frá titlinum en Dani er ennþá með báða fætur á jörðinni. „Við þurfum bara að vinna einn leik enn en við getum ekki mætt værukærar í næsta leik. Haukar spiluðu betur í kvöld en í síðasta leik og ég reikna með þeim enn betri í næsta leik. Við þurfum bara að einbeita okkur að einum leikhluta einu og fimm mínútum í einu í næsta leik.“
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Körfubolti Mest lesið Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? Sport Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Þjóðir biðja um að halda ekki upp á hinsegin daga meðan á leik þeirra stendur Fótbolti AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira