„Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Sindri Sverrisson skrifar 13. maí 2026 08:32 Liðsfélagar DeAndre Kane héldu aftur af Degi Þór Baldvinssyni sem lét Kane heyra það fyrir að fagna með fokkjúputta í átt að stuðningsfólki Tindastóls. Samsett/Sýn Sport „Auðvitað á Kane bara að sleppa þessu en menn verða að halda haus,“ sagði Sævar Sævarsson eftir fokkjúmerkin sem DeAndre Kane sendi stuðningsfólki Tindastóls eftir sigur Grindavíkur á Sauðárkróki í gærkvöld.
Sævar sagði að svo virtist sem forráðamenn Tindastóls væru að missa hausinn, lentir 2-0 undir í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Kane sendi stuðningsfólki Tindastóls ítrekað fokkjúmerki, strax eftir leik, samhliða því sem hann fagnaði með eigin stuðningsmönnum sem einnig fjölmenntu í Síkið, þar sem Grindavík vann á endanum 86-83 í æsispennandi leik. Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, sá hvernig Kane hegðaði sér, reiddist og lét hann heyra það. Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls gagnrýndi hegðun Kane sömuleiðis harðlega í viðtali eftir leik. Brot úr viðtalinu, hegðunina og umræðu í Körfuboltakvöldi má sjá hér að neðan. Klippa: Umræða um hegðun Kane Sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi hvöttu hins vegar forráðamenn Tindastóls til þess að einbeita sér að körfuboltanum í stað þess að láta Kane hafa þessi áhrif á sig. „Það er eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn. Þjálfarinn og í þessu tilviki formaðurinn. Áhorfendurnir voru ekkert að gera sig líklega til að fara inn á völlinn,“ sagði Sævar í beinni útsendingu úr Síkinu eftir leik í gærkvöld og honum var mikið niðri fyrir. „Við höfum hundrað sinnum séð einhverja stæla og eitthvað svona eiga sér stað. Þetta er auðvitað algjör óþarfi hjá Kane og auðvitað á hann bara að sleppa þessu en menn verða bara að halda haus. Mega ekki missa sjónar á því sem skiptir mestu máli og það er að vinna körfuboltaleiki. Arnar talar um skotin hjá Tindastóli, að þetta sé eins og rúlletta. Þetta hefur bara ekkert með rúllettu að gera. Körfubolti er ekki rúlletta og snýst ekki um heppni. Skotin fóru ekki ofan í því það er eitthvað vanstillt,“ sagði Sævar og benti á að aðalmenn Tindastóls væru þeir sem væru að taka skotin gegn Grindavík. Skortur á sjálfstrausti hljóti að hafa áhrif á það að í gær var þriggja stiga nýtingin aðeins 15,8%. „Eftir höfðinu dansa limirnir. Það þarf að fara að finna einhverja lausn á vandamáli Tindastóls sem er inni á vellinum. Ekki á því hvort Kane sé með einhverja stæla við áhorfendur,“ sagði Sævar. Þriðji leikur liðanna er á föstudagskvöld og þar geta Grindvíkingar með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Lið sem komast í 2-0 í úrslitaeinvíginu hafa aldrei tapað einvíginu.
Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík Tengdar fréttir Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var ekki ánægður eftir tap hans manna fyrir Grindavík í Síkinu á Sauðárkróki í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í kvöld. Hann kallar eftir viðurlögum fyrir DeAndre Kane, leikmanni Grindavíkur, sem var með læti eftir leik. 12. maí 2026 21:59 „Einhver barnaskapur held ég“ Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var mjög ánægður að ná að klára leik tvö í kvöld á móti Tindastóli í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. 12. maí 2026 22:58 Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Fleiri fréttir Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Sjá meira
Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var ekki ánægður eftir tap hans manna fyrir Grindavík í Síkinu á Sauðárkróki í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í kvöld. Hann kallar eftir viðurlögum fyrir DeAndre Kane, leikmanni Grindavíkur, sem var með læti eftir leik. 12. maí 2026 21:59
„Einhver barnaskapur held ég“ Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var mjög ánægður að ná að klára leik tvö í kvöld á móti Tindastóli í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. 12. maí 2026 22:58