Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar 13. maí 2026 12:16 Síðan ég fór í framboð, hreinlega síðan ég fór prófkjör í vetur, hefur fólk komið til mín og beðið mig um að gera eitthvað í málefnum hundaeigenda. Ég get sagt ykkur að þetta er heitt málefni í Kópavogi. Það kom mér svolítið á óvart, ég sá þetta kannski ekki fyrir mér sem eitt af stóru málunum, sem þetta kannski er ekki heldur; en þetta skiptir marga máli og ég skil það. Hundaeigendur í Kópavogi fá ekkert fyrir sinn snúð. Ég hef talað við fólk úr öllum hverfum bæjarins sem hafa sagt mér frá sömu þörfinni: að fá fleiri og betri svæði þar sem hægt er að sleppa hundum lausum á öruggan hátt. Það væri mikilvægt skref fyrir Kópavog að byggja upp lausagöngusvæði fyrir hunda, þar sem dýr og eigendur þeirra geta notið útiveru við góðar aðstæður. En svo væri líka gott að fá minni svæði inni í hverfum þar sem hundar og eigendur geta hist, æft sig saman og átt góða stund. Þar sem hundar fá að hreyfa sig, hitta aðra hunda og læra félagsfærni í öruggu umhverfi. Þetta er gott samfélagsmál. Hundar sem fá reglulega hreyfingu, umhverfisþjálfun og félagsþjálfun verða öruggari og betri hundar í samfélaginu okkar. Eigendur verða öruggari með hundana sína og samvera fólks og dýra verður auðveldari fyrir alla. Þetta skiptir nefnilega líka máli fyrir þau sem eru hrædd við hunda. Það myndi hreinlega skapa meiri ró ef það væri skýrt hvar hundum er sleppt lausum og hvar ekki. Það er einfaldlega betra fyrir okkur öll þegar skipulagið er skýrt, sanngjarnt og virkar í raun. Í dag sækja margir Kópavogsbúar þjónustu og aðstöðu í önnur sveitarfélög. Fólk keyrir með hundana sína til Reykjavíkur á Geirsnef eða í Paradísardal; eða í Garðabæ á hundasvæðið við Garðahraunsveg svo eitthvað sé nefnt til að finna svæði þar sem Kópavogur hefur skilað auðu í þessum efnum hingað til. Ég verð að segja það, mér finnst það ekki vera nógu gott fyrir næst stærsta sveitarfélag landsins. Við eigum að geta gert betur. Hundahald er leyft í Kópavogi og með því fylgir ábyrgð, bæði hjá eigendum og sveitarfélaginu sjálfu. Sveitarfélagið á ekki bara að innheimta gjöld heldur líka að tryggja lágmarks aðstöðu fyrir dýr og eigendur þeirra. Hundar eru skyni gæddar verur sem þurfa hreyfingu, útiveru og öruggt rými til að þrífast. Þetta tengist líka stærri spurningum um hvernig bæ við viljum byggja. Ég vil Kópavog þar sem lífsgæði, græn svæði og mannvænt skipulag fá meira vægi. Bæ þar sem við hugsum um samfélagið í heild sinni, líka dýrin sem búa hér með okkur. Undanfarin ár hefur mikið verið byggt í Kópavogi og víða gengið langt í þéttingu. Á sama tíma hafa græn svæði minnkað, opnum svæðum fækkað og nærumhverfið víða orðið kaldara og harðara. Þá gefur það augaleið að við verðum að hugsa þessar þarfir inn í grunn innviði bæjarins. Fólk og ferfætlingar þurfa rými til útiveru, samveru og hreyfingar. Það getur ekki verið eðlilegt að næst stærsta sveitarfélag landsins hafi ekki byggt upp raunverulega og aðgengilega aðstöðu fyrir hundaeigendur. Afleiðingin er sú að fólk leitar í önnur sveitarfélög eftir svæðum sem Kópavogur hefur ekki sinnt sjálfur. Fyrir mér snýst þetta um lífsgæði, ábyrgð og skýra sýn á samfélagið okkar. Með góðu skipulagi getum við skapað bæ þar sem fleiri geta notið sín. Bæ þar sem tekið er mið af raunverulegu lífi íbúanna og þeim ekki vísað í önnur sveitarfélög til að nýta sér grundvallaraðstöðu sem skylt er að veita. Ég vil sjá hundavænni Kópavog. Ég held að sá Kópavogur verði einfaldlega betri fyrir okkur öll. Höfundur er Kópavogsbúi og skipar 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun