Erum við að normalisera kulnun barna? Inga Valgerður Henriksen. skrifar 12. maí 2026 15:15 Það er djúpstæð mótsögn fólgin í því að samfélagið hefur loksins byrjað að viðurkenna áhrif langvarandi streitu, kulnunar og ofálags á fullorðið fólk, á sama tíma og við gerum sífellt meiri kröfur til barna um stöðuga frammistöðu, aukið námsálag og vinnu langt umfram það sem taugaþroski þeirra raunverulega ræður við. Við tölum um kulnun fullorðinna af alvöru. Um streitukerfi sem fari í ofkeyrslu. Um mikilvægi hvíldar, jafnvægis og geðheilsu. Við viðurkennum að manneskja sem starfar undir stöðugu álagi missir smám saman getu til einbeitingar, tilfinningastjórnunar, úrvinnslu og sjálfbærrar virkni. En þegar kemur að börnum virðist allt önnur mælistika gilda. Börn verja stórum hluta dags síns í skólaumhverfi sem einkennist oft af stöðugu áreiti, félagslegum kröfum, hávaða, árangursmati og sífelldri virkni. Að loknum löngum skóladegi taka svo við verkefni, heimanám, prófaundirbúningur, tómstundir og væntingar um áframhaldandi afköst. Samfélagið virðist á sama tíma sífellt minna tilbúið að spyrja grundvallarspurningarinnar: Er þetta í raun samræmanlegt þeirri þekkingu sem við búum yfir í dag um taugaþroska barna? Nútíma rannsóknir í tauga- og þroskasálfræði sýna skýrt að barnsheilinn er ekki „lítil útgáfa“ af fullorðinsheila. Framheilabörkurinn, sá hluti heilans sem stýrir meðal annars athygli, hömlun, skipulagi, vinnsluminni, tilfinningastjórn og úthaldi, er ekki fullþroskaður fyrr en á ungfullorðinsárum. Börn hafa því líffræðilega takmarkaðri getu til langvarandi sjálfsstjórnunar, einbeitingar og álagsúrvinnslu en fullorðnir einstaklingar. Þegar barn lifir við viðvarandi taugaálag fer streitukerfi líkamans smám saman að taka yfir. Geta til náms, úrvinnslu, minni og tilfinningastjórnunar minnkar. Þetta eru ekki huglægar skoðanir eða „mýkri uppeldisviðhorf“, heldur grunnatriði sem hafa lengi verið þekkt innan taugalíffræði, þroskasálfræði og áfallafræði. Samst virðist menntakerfið enn að stórum hluta byggja á úreldri hugmyndafræði um að meira álag, meiri vinna og meiri agi leiði sjálfkrafa til betri námsárangurs. Þessi nálgun verður sérstaklega alvarleg þegar litið er til barna með taugaþroskaraskanir, svo sem ADHD eða einhverfu, barna með skynúrvinnsluvanda, áfallasögu eða kvíða. Fyrir mörg þessara barna er skóladagurinn sjálfur sambærilegur við langvarandi streituástand þar sem taugakerfið er undir stöðugu álagi. Þau verja stórum hluta dagsins í að bæla niður vanlíðan, halda fókus í umhverfi sem þau ráða illa við, túlka félagsleg samskipti, aðlagast ófyrirsjáanlegum aðstæðum og reyna að mæta stöðugum kröfum um hegðun og frammistöðu. Þegar þessi börn koma heim er orkuforðinn því sjaldnast „orðinn minni“, hann er einfaldlega uppurinn. Þá er varhugavert að leggja frekar kröfur ofan á það undir formerkjum aga, metnaðar eða „undirbúnings fyrir lífið“. Slík nálgun er ekki einstaklingsmiðuð menntun, heldur birtingarmynd kerfisbundins skilningsleysis á taugaþroska barna og raunverulegum mörkum þeirra. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að mikið heimanám hjá yngri börnum skilar takmörkuðum sem engum mælanlegum langtímaávinningi þegar kemur að námsárangri. Aftur á móti hafa rannsóknir tengt aukið námsálag við streitu, svefnvanda, kvíða, sjálfsniðurrif, minnkaða sjálfsmynd og neikvæðara viðhorfi til náms. Þegar nám verður fyrst og fremst upplifun um stöðugt álag fremur en forvitni, öryggi og þroska þá skapast raunveruleg hætta á að börn fari að tengja eigið virði við frammistöðu eina saman. Það sem gleymist einnig í umræðunni er að börn læra ekki eingöngu í gegnum verkefnablöð, próf eða skrifborðsvinnu. Heilbrigður taugaþroski byggist ekki síður á leik, hvíld, tengslamyndun, hreyfingu, sköpun og félagslegri þátttöku. Þetta eru ekki „aukahlutir“ sem mega víkja þegar árangurskrafan eykst. Þetta eru líffræðilegar og sálfélagslegar grunnforsendur heilbrigðs þroska, náms og geðheilsu. Þegar barn ræður ekki við meira álag er því hættulegt að túlka það sjálfkrafa sem leti, agaleysi eða metnaðarleysi. Í mörgum tilfellum er um að ræða taugakerfi sem hefur verið keyrt langt yfir eigin þolmörk. Börn í langvarandi streitu missa smám saman aðgang að þeirri hæfni sem þau búa í raun yfir. Það er því kannski kominn tími til að endurmeta hvernig við skilgreinum „góða menntun“. Kannski ættum við að hætta að meta gæði skólakerfis út frá því hversu mikið álag barn þolir og fara þess í stað að spyrja hvort kerfið sjálft sé orðið ósamræmanlegt grunnþörfum barna og þeirri þekkingu sem við búum yfir í dag um taugaþroska, streitu og geðheilsu. Því samfélag sem normalíserar kulnun barna í nafni árangurs þarf að staldra við. Höfundur er Meistaranemi í Félagsráðgjöf til starfsréttinda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar