Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Lovísa Arnardóttir skrifar 3. maí 2026 08:27 Forsetinn fer nú yfir nýjustu tillöguna frá Íran. Vísir/EPA Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði.
Í frétt Guardian um málið segir að Íranir segi boltann hjá Trump og að ólíklegt sé að hann samþykki nýjustu tillöguna um frið. Í fréttinni segir að tillagan innihaldi 14 punkta og að hún hafi verið send til Trump frá embættismönnum í Íran í gegnum embættismenn í Pakistan. Fjórtán punkta tillaga þeirra til Trump feli meðal annars í sér brottflutning bandarískra hersveita frá svæðum í kringum Íran, afléttingu á hafnbanni Bandaríkjanna á Hormússundi, losun á frystum eignum Írans, greiðslu bóta, afléttingu refsiaðgerða og endalok stríðsins á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon, auk nýs eftirlitskerfis fyrir sundið. Trump sagði í samtali við blaðamenn í gær að hann ætlaði að skoða tillöguna og myndi svo tjá sig um hana. Stuttu síðar birti hann færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social þar sem hann sagðist ekki geta ímyndað sér að tillagan væri viðunandi og að Íranir hefðu ekki „greitt nægilega hátt gjald fyrir það sem þeir hafi gert mannkyninu og heiminum síðustu 47 árin“. Trump hafnaði annarri tillögu frá Íran í síðustu viku en vopnahlé hefur verið í gildi í tæpan mánuð. Einar friðarviðræður hafa farið fram í Pakistan en án árangurs. Bandaríkjamenn hafa ítrekað sagt að þeir muni ekki samþykkja friðarsamkomulag sem ekki inniheldur ákvæði um að Íranir megi ekki koma sér upp kjarnorkuvopnum en það er helsta ástæða Trump fyrir innrás sinni í Íran í febrúar. Olíuverð og hermenn Afleiðingar stríðsins í Íran eru verulegar en Íranir lokuðu allri umferð um Hormússund í kjölfar þess. Fimmtungur af allri olíu er fluttur um sundið. Að sama skapi hafa Bandaríkjamenn komið á herkví við strendur Írans. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur um tvöfaldast frá því að stríðið hófst. Í frétt Guardian segir að í erlendum miðlum hafi í vikunni verið greint frá því að Íranir hafi lagt til að sundið yrði opnað áður en þau leysi úr ágreiningi um kjarnorkuvopnin. En í frétt Guardian segir að á blaðamannafundi Trump í gær hafi hann gefið í skyn að hernaðaraðgerðum væri ekki lokið. „Ef þeir haga sér illa, ef þeir gera eitthvað slæmt, en núna, þá sjáum við til,“ sagði hann. „En það er möguleiki sem gæti vissulega orðið að veruleika.“ Fleiri hermenn kallaðir heim Trump hefur á sama tíma tekið gagnrýni á aðgerðir sínar í Íran afar illa og var tilkynnt fyrir helgi að þúsundir hermanna í Þýskalandi yrðu kallaðir heim. Það var eftir að Trump og Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, tókust á um stríðið en kanslarinn hefur ekki viljað styðja við aðgerðirnar eins og Trump hefði kosið. Upphaflega var tilkynnt að um fimm þúsund hermenn færu heim en Trump sagði svo í gær að þeir gætu orðið fleiri. Alls eru um 80 til 100 þúsund bandarískir hermenn í Evrópu en þeim var fjölgað eftir innrás Rússa í Úkraínu. Talskona NATO sagði í gær sambandið reyna að skilja þessa ákvörðun og varnamálaráðherra Þýskalands, Boris Pistorius, sagði í gær að hótunin væri fyrirséð. Evrópskar þjóðir þyrftu að taka meiri ábyrgð á eigin vörnum. Hann lagði þó einnig áherslu á að vera hermannanna í Þýskalandi gagnaðist beggja vegna Atlantshafsins. Fjallað er um það á vef AP.
Bandaríkin Þýskaland Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía NATO Donald Trump Tengdar fréttir Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar. 2. maí 2026 08:23 Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran. 1. maí 2026 22:52 Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira
Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar. 2. maí 2026 08:23
Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran. 1. maí 2026 22:52