Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. maí 2026 23:02 Yasir Al-Rumayyan var í banastuði eftir leik. Stu Forster/Getty Images Stjórnarformaður ríkissjóðsins í Sádi-Arabíu var í mjög góðu stuði og lofaði Newcastle öllu fögru eftir 3-1 sigur liðsins gegn Brighton í dag.
Mikið hefur gustað um ríkissjóð Sádi-Arabíu síðustu vikur og á miðvikudag bárust fregnir af því að stjórnarformaðurinn Yasir Al-Rumayyan myndi segja skilið við LIV golfmótaröðina. Hann flaug svo til Newcastle á fimmtudag og átti fund með Eddie Howe til að fara yfir málin eftir slakt gengi liðsins að undanförnu. Andrúmsloftið var því spennuþrungið þegar Al-Rumayyan mætti á leik Newcastle í dag. Newcastle stóðst hins vegar pressuna, vann sinn fyrsta sigur í sex vikur og batt þar með enda á fjögurra leikja taphrinu. William Osula og varnarmaðurinn Dan Burn skoruðu fyrir Newcastle og Jack Hinshelwood minnkaði muninn fyrir Brighton áður en Harvey Barnes tryggði 3-1 sigur í lok leiks. Létt var á með Anthony Gordon og Al-Rumayyan. Stu Forster/Getty Images Sigurinn var samt alls ekki sjálfsagður og Newcastle þurfti að vinna mikið fyrir honum í þessum leik. Eftir leik var Al-Rumayyan svo létt að hann skellti sér niður á völl. Þar hélt hann bolta aðeins á lofti með leikmönnum áður en hann fór svo inn í búningsklefa og hélt ræðu. The Times greinir frá því að ræðan hafi verið jákvæð fyrir Newcastle. Það er að segja, að ríkissjóðurinn muni ekki losa sig við félagið líkt og LIV mótaröðina. „Hann talaði vel til okkar. Það var frábært að sjá alla sameinaða í gleðinni aftur í búningsklefanum,“ sagði Eddie Howe þjálfari Newcastle. Starf hans hefur verið talið í hættu sökum gengis.
Newcastle United Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira