Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Bjarki Sigurðsson skrifar 29. apríl 2026 18:10 Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir í kvöld. vísir Aukinn innflutningur fíkniefna með Norrænu veldur verulegum áhyggjum. Lögreglan segir málin tengjast skipulegri glæpastarfsemi og að grípa verði inn í áður en ástandið versni. Rannsóknarlögreglumaður óttast að Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð.
Við verðum í beinni frá Seyðisfirði þar sem við ræðum við yfirhafnarstjóra um samstarf við lögregluna og hvað það þýðir fyrir íbúa svæðisins að skipið sé farið að sigla á ný til bæjarins. Íslandshótel hafa tryggt sér rekstur hótelanna við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg til næstu sautján ára. Við yfirtökuna 1. september verða um 300 starfsmenn hótelanna tveggja endurráðnir og ráðist í þriggja milljarða endurbætur á hótelunum sem hafa sett mark sitt á Reykjavík í áratugi. Við sjáum brot úr Pallborðinu á Vísi þar sem oddvitaefni flokkanna í Hafnarfirði tókust á um helstu deilumál fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Gervigreindin hefur gert vart við sig í umræðunni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og oft erfitt að greina hvenær frambjóðendur nota mállíkön og hvenær ekki. Einn oddviti Sjálfstæðisflokksins þvertekur fyrir það á meðan annar sér ekki eftir staðreyndavillum úr smiðju gervigreindarinnar. Svæðið sem áformað hefur verið undir flugvöll í Hvassahrauni flokkast í nýrri skýrslu Veðurstofunnar undir mesta áhættusvæði hraunflæðis á Reykjanesskaga. Jafnframt fellur það innan svæða með líkur á gosopnun. Þverpólitísk samstaða hefur náðst á Alþingi um að breyta umferðarlögum þannig að eldri borgarar þurfi mun sjaldnar að endurnýja ökuskírteini sín. Formaður Landssambands eldri borgara segir þetta fagnaðarefni. Starlink-búnaði hefur nú verið komið fyrir í skólabíl á Patreksfirði af öryggisástæðum. Hvorki foreldrum né sveitarstjórn þótti forsvaranlegt að daglega væri ekið með börn langa vegarkafla án netsambands. Tindastóll er með bakið upp við vegg fyrir leik þrjú við Stjörnuna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna. Troðfullt hús Sauðkrækinga mun styðja liðið til sigurs í Síkinu í kvöld og við verðum að sjálfsögðu í beinni þaðan.
Kvöldfréttir Mest lesið Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira