Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Árni Sæberg skrifar 29. apríl 2026 16:28 Úr skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. RNSA Veður og öldulag þann 30. júní 2025 var með þeim hætti að sjósókn lítilla báta gat verið varhugaverð út af Patreksfirði, þar sem Magnús Þór Hafsteinsson drukknaði. Samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa má telja líklegt að rafgeymar sem ekki gátu fætt lensidælur hafi skert sjóhæfni Ormsins langa. Auk þess hafi bátnum verið siglt í gegnum Blakksnesröstina, sem geti verið smærri bátum varhugaverð, þó að sú sigling til hafnar sé styttri.
Strandveiðimaðurinn og alþingismaðurinn Magnús Þór Hafsteinsson lést þann 30. júní árið 2025, þegar Ormurinn langi AK-64, sem hann gerði út frá Patreksfirði, sökk. Magnús Þór hafði verið við strandveiðar á Orminum langa nokkrar vikur fyrir slysið. Hann var einn um borð þegar báturinn sökk. Rannsóknarnefnd samgönguslysa skilaði skýrslu sinni vegna slyssins í dag. Ýmis atriði sem skertu sjóhæfni Samkvæmt henni voru helstu orsakir slyssins þær að veður og öldulag voru með þeim hætti að sjósókn lítilla báta gat verið varhugaverð. Það megi telja líklegt að rafgeymar sem ekki gátu fætt lensidælur hafi skert sjóhæfni Ormsins langa, auk þess að bátnum hafi verið siglt í gegnum Blakksnesröstina, sem geti verið smærri bátum varhugaverð, þó að sú sigling til hafnar sé styttri. Önnur atriði hafi komið fram við rannsóknina, sem ekki sé hægt að fullyrða að tengist andláti Magnúsar Þórs, en RNSA telji alvarleg og hafi haft áhrif á björgunarbúnað og sjóhæfni bátsins. Sjósleppilokinn hafi ekki skorið gúmmíbjörgunarbátinn lausan og gúmmíbjörgunarbáturinn hafi aldrei getað flotið upp. Þá hefði gúmmíbjörgunarbáturinn aldrei getað blásið út þar sem í hausinn á loftflöskunni hafi vantað hnífinn sem rífur membruna, sem hleypir lofti úr flöskunni og blæs upp björgunarbátinn. Bjarghringurinn hafi verið festur í stæði með einangrunarlímbandi og því hafi hann ekki flotið upp. Breytingar ekki tilkynntar Ýmsar breytingar á bátnum, sem hafi haft umtalsverð neikvæð áhrif á stöðugleika hans og fríborð, hefðu verið gerðar án samþykkis Samgöngustofu og án nokkurs eftirlits. Í skipalögum sé skýrt að engar meiri háttar breytingar megi gera á skipi, svo sem aðalvélarskipti eða breytingar sem hafa áhrif á mælingu skips, sjóhæfni og stöðugleika, án þess að fyrir liggi samþykki Samgöngustofu og breytingarnar skuli gerðar undir eftirliti hennar. Kassi sem komið var fyrir á Orminum langa,afmarkaður með rauðum línum.RNSA Eiiganda og skipasmíðastöð ber að tilkynna slíkar breytingar til Samgöngustofu en það hafi ekki verið gert og skoðunarstofa sem framkvæmdi reglubundnar árlegar skoðanir hafi engar athugasemdir gert við þær. Það sé að mati RNSA umhugsunarvert sérstaklega í ljósi þess að sett hafi verið séríslensk ákvæði við innleiðingu Norðurlandareglnanna, sem geri ríkari kröfur til stöðugleika og fríborðs en í hinum löndunum sem eiga aðild að reglunum. Ómögulegt að ná Magnúsi Þór um borð Þá segir í skýrslunni að Magnús Þór hafi verið búinn uppblásanlegu björgunarvesti. Hann hafi, samkvæmt vitnisburði, verið með meðvitund fyrstu mínúturnar hið minnsta en skipstjóra á nærstöddum báti hafi ekki tekist að ná honum um borð. Fjarlægð niður að sjávarlínu á þeim báti hafi 1,2 metrar og reynst hafi með öllu ómögulegt fyrir einn mann að ná sjóblautum manni um borð. Dánarorsök hins látna hafi verið örmögnun.
Sjávarútvegur Samgönguslys Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira