Er kennari ógn fyrir að trúa börnum sem segja frá ofbeldi? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar 28. apríl 2026 20:00 Yfirmanni mínum barst kvörtunarbréf yfir því að ég skuli trúa barnungum stúlkum fram yfir fullorðinn geranda. Viðkomandi taldi mig ekki til hæfa til að kenna börnum af því að ég stend með börnum. Er ekki eitthvað bogið við þessa röksemdafærslu? Sem kennari ber mér einmitt (samkvæmt siðareglum og námskrá) að standa með mannréttindum og vinna gegn ofbeldi. Ég kýs að trúa þolendum ofbeldis. Ég kýs að trúa börnum sem segja frá ofbeldi og áreitni. Reynslan sýnir að yfir 90% gerenda neita að hafa beitt ofbeldi. Gerendur ljúga. Reynslan sýnir að samt hefiur samfélagið tilhneigingu til að trúa þeim frekar og hneykslast á að þeir séu kallaðir út með einhverjum hætti. Oft er reynt að nota dómskerfið sem afsökun og af því að viðkomandi fékk ekki dóm sé hann pottþétt saklaus. Það sér það hver maður að dómskerfið okkar er gallað þegar kemur að þessu. Nýlegur dómur gagnvart manni sem braust inn á heimili og misnotaði barn alvarlega sýnir það svart á hvítu. Ég trúi fjölmörgum stúlkum á barnsaldri sem segja frá kynferðislegri áreitni Ingó Veðurguðs í gegnum tíðina. Það að hann neiti er bara svo gefið. Nær allir ofbeldismenn gera það. Hins vegar er það mjög fátítt að þolendur ljúgi til um ofbeldi. Og þegar að margar ólíkar stúlkur segja sömu sögu um sama mann er næsta öruggt að maðurinn er sekur. Það er fáránlegt að ætla mörgum ólíkum 14 ára stúlkum sem þekkjast ekki að ákveða að ljúga allar sömu sögunni. Til hvers í ósköpunum? Og þó hún væri bara ein. Skiptir ekki máli. Rannsóknir og töluleg gögn segja líka sömu sögu. Gerendur ljúga en þolendur segja satt. Það að til séu einstök dæmi um einhverjar lygar þolenda í gegnum tíðina á að sjálfsögðu ekki að yfirskyggja fjöldann. Það er samt tilhneiging almennings sem elskar þolendaskömmun og er sekur um gerendameðvirkni. Þetta er allt þekkt. En einmitt af því að ég stend með mannréttindum og af því að ég fordæmi hvers konar ofbeldi trúi ég þolendum. Það að töluleg gögn bakki það upp er bara extra bónus. Af því að ég er kennari og stend með börnum og unglingum trúi ég 14 ára stúlkum til að segja sannleikann. Kennarar eru bundnir af námskrá og siðareglum sem snúast að mörgu leiti um að standa með mannréttindum og að tala gegn ofbeldi. Að halda því fram um að ég sé ekki hæf til að kenna börnum því ég stend með þeim og trúi þeim er því furðuleg mótsögn. Að halda að af mér standi ógn gagnvart slaufuðum gerendum eða þeirra fjölskyldum er náttúrulega fásinna. Ég hef ekki einu sinni kallað út minn eigin geranda síðan ég var barn. Það er skammarlegt að vera með barnamálaráðherra sem stendur ekki með börnum. Sem trúir ekki börnum og velur að falla í pitt gerendameðvirkni og trúa geranda og segja með því að börnin hafi verið að ljúga. Gerendur búa til sína eigin slaufun með hegðun sinni, áreitni og ofbeldi. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar