Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 23. apríl 2026 13:13 Ragnhildur Þóra Káradóttir fór fyrir teyminu. Bólgur í heila sem almennt hafa verið taldar skaðlegar heilsunni gætu í raun verið hluti af endurnýjunarferli heilans. Ný rannsókn hóps vísindamanna undir forystu íslensks prófessors vekur spurningar um hvort meðferðir við MS-sjúkdómnum gætu hægt á framvindu heilabilunar.
Ragnhildur Þóra Káradóttir, prófessor í taugalífeðlisfræði við Cambridge-háskóla og Læknadeild Háskóla Íslands fór fyrir rannsókninni sem birt var í hinu virta tímariti Nature í gær og kollvarpa hefðbundnum hugmyndum um bólgur í heila. Heilinn skiptist hvítt og grátt efni til helminga. Í gráa efninu er að finna vinnslustöðvar heilans en þær eru tengdar saman með hvíta efninu sem stuðlar að því að taugaboð berist hratt um taugakerfið. Svokallað mýelín er byggingarefni hvíta efnisins og það greiðir fyrir því að taugaboð berist hratt um miðtaugakerfið. Hvíta efnið er því konar upplýsingahraðbraut heilans en það er einnig að finna í mænunni. Hjá fólki með MS-sjúkdóminn ræðst ónæmiskerfið á hvíta efnið og skemmir það, sem hefur áhrif á leiðni taugaboða um líkamann, en slíkar skemmdir sjást einnig hjá fólki með taugahrörnunarsjúkdóma eins og Alzheimers og Parkinson. Hins vegar hefur skort frekari skilning á afleiðingum skemmdanna. Endurmyndun mýelíns skert án bólgu Í rannsókninni gerðu Ragnhildur og samstarfsfólk hennar tilraun þar sem staðbundnar skemmdir voru unnar á mýelíni í vel skilgreindri taugarás í heilanum. Þau könnuðu hvaða áhrif það hefði þegar frá liði. Í ljós kom að þessar staðbundnu skemmdir á mýelíni kölluðu fram skýrt viðbragð í gráu svæði heilans sem tengdist umræddri taugarás. Virkni tauga minnkaði og um leið virkjuðust ónæmisfrumur heilans í bólgusvari auk þess sem rof varð á tengingum milli taugafruma. Hins vegar var ekki um varanlegar breytingar að ræða. Þegar mýelínið hafði endurmyndast virkjuðust taugafrumurnar á ný og tengdust aftur og þá dró úr ónæmisviðbrögðum heilans. Niðurstöður rannsóknarinnar ganga gegn hefðbundnum hugmyndum um bólgur í heila. Almennt hefur verið litið svo á að bólgur í gráa efni heilans séu skaðlegar heilsunni en í rannsókninni komust vísindamennirnir að því að þetta skammvinna bólgusvar var hluti af endurnýjunarferli heilans. Það sást þegar vísindamennirnir komu í veg fyrir bólgu í gráa efninu, en þá skertist endurmyndun mýelínsins. Rannsóknin sýndi einnig að þegar endurmyndun mýelíns er stöðvuð bregst gráa efnið ekki við heldur verður ástandið krónískt. Þetta bendir til þess að þegar mýelín endurmyndast ekki í heilanum geti það stuðlað að lítilli en þrálátri bólgu sem sést hjá fólki með taugahrörnunarsjúkdóma. Auk Ragnhildar eru þau Tanja Mist Birgisdóttir og Sindri Snær Gíslason, doktorsnemar við Læknadeild HÍ, meðal höfunda greinarinnar ásamt stórum hópi vísindamanna við Cambridge-háskóla og vísindastofnanir víðar í Evrópu og Bandaríkjunum. Gæti nýst við meðferð við heilabilun Ragnhildur segir niðurstöðurnar skipta miklu máli fyrir skilning okkar á MS-sjúkdómnum þar skemmdir á hvíta efninu, krónísk bólgueinkenni í miðtaugakerfinu og skerðing á endunýjun mýelíns tengjast náið framvindu sjúkdómsins. Rannsóknin hafi líka almennt gildi þar sem hún varpi nýju ljósi á það hvernig staðbundnar skemmdir á hvíta efninu geti haft áhrif víðtækari áhrif á vanvirkni heilans og valdið viðvarandi bólgum þegar endurmyndun mýelíns bregst. Þannig geti skemmdirnar hrundið af stað sameiginlegum einkennum sem sjást í heilabilun og öðrum taugasjúkdómum. Hún bendir enn fremur á að þar sem hægt er að örva endurmyndun mýelíns í mönnum veki þetta spurningar um hvort meðferðir sem nú eru þróaðar fyrir MS-sjúkdóminn sé hægt að nýta víðar og mögulega hægja á framvindu ýmissa heilabilunarsjúkdóma.
Vísindi Heilbrigðismál Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira