„Þetta er ekki græðgi“ Bjarki Sigurðsson skrifar 20. apríl 2026 19:29 Pétur Rúnar Heimisson er markaðs- og samskiptastjóri Heima. Vísir/Sigurjón Í sumar hefst gjaldskylda á bílastæðinu við Egilshöll í Grafarvogi. Forsvarsmaður segir breytinguna ekki til að græða, heldur til að auka þjónustu. Of margir skilji eftir bíla og ferðavagna á stæðinu í lengri tíma.
Unnið er að því að koma upp sjálfvirkri númeraplötugreiningu við innkeyrslur Egilshallar. Þar mun mega leggja gjaldfrjálst í allt að þrjár klukkustundir en eftir það byrjar mælirinn að tikka. Í húsinu er ýmis starfsemi, til að mynda kvikmyndahús, skautahöll, keilusalur, líkamsrækt, sjúkraþjálfun og fleira. Þrátt fyrir sjö hundruð bílastæði fyrir utan höllina þá fyllist planið á háannatíma. Vinnuvélar skildar eftir Af stæðunum sjö hundruð eru hundrað forgangsstæði sem eru nær höllinni sjálfri. Gjaldfrjálst verður fyrstu fimmtán mínúturnar í þau og rukkað eftir það. Stæðin eru hugsuð fyrir þá sem ætla að stoppa stutt en of oft leggur fólk í lengri heimsóknum þar. Þá fyllist stæðið fljótt þegar fólk leggur þar ferðavögnum, langferðabílum og vinnuvélum þar til lengri tíma, eins og gerist svo oft að sögn Péturs Rúnars Heimissonar, samskiptastjóra Heima sem á húsið. „Við erum að sjá að það er erfitt að komast að á háannatíma. Við trúum að þetta muni tryggja betri upplifun við að koma að húsinu,“ segir Pétur. Öryggismál Börn séu mikið í húsinu og þá þurfi að huga að öryggi. „Til að mynda þegar hér eru stór íþróttamót fyllast stæðin. Þá viljum við ekki að bílar séu hringsólandi alveg upp við húsið þegar úti er myrkur á veturna,“ segir Pétur. Í Egilshöll er hægt að brasa ýmislegt. Hægt er að fara í keilu, bíó, fótbolta, ræktina, á skauta og fleira. Vísir/Sigurjón Engin græðgi Skoðað verður að bregðast við í takt við þarfir gesta, líkt og þegar bíómyndir eru lengri en þrír tímar. Í hverfishóp Grafarvogs segjast sumir íbúar ætla að sleppa því að sækja höllina eftir breytingu. Verið sé að drepa starfsemina þar. Pétur segir breytingarnar gerðar í sátt við rekstraraðila í húsinu. „Við erum að byrja og eigum eftir að skoða kerfið. Sjá hvernig umferðin er. Við munum fá raungögn úr þessu kerfi þannig við getum alltaf séð hvað þjónar meirihlutanum,“ segir Pétur. Þannig þetta er verk í vinnslu? „Þetta er verk í vinnslu og er fyrst og fremst þjónustuverkefni. Ekki gjaldskylduverkefni.“ Þetta er engin græðgi? „Þetta er ekki græðgi.“
Neytendur Bílastæði Reykjavík Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira