Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar 18. apríl 2026 16:31 Enn einu sinni hefur Snorra Mássyni tekist að fá stóra hópa fólks upp á móti sér með skoðunum sem ég tel frekar einstrengingslegar og lítið í takti við það sem hinn almenni samfélagsþegn hugsar. Eftir því sem ég best veit, hefur hann ekki þá reynslu að börnin hans upplifi sig í röngum líkama eða hrífist af einstaklingi af sama kyni. Ég á þrjú börn, börn sem fæddust öll sem drengir. Í dag samanstendur hópurinn af tveimur sonum, einni dóttur og svo bættist tengdasonur í hópinn fyrir nokkru síðan. Við erum áhugaverður söfnuður, skemmtileg og lífleg en hokin af alls kyns reynslu sem lífið hefur fært okkur. Og við tilheyrum regnboganum, þar sem tvö börnin mín eru þar. Það er ekki alltaf að sjá á unga fólkinu okkar ef því líður illa, margir bera hugsanir sínar í hljóði og koma fólki verulega á óvart þegar þau opna sig. Það upplifðum við með fyrra barnið. Seinna barnið var augljósara og þá var líka búið að ryðja brautina. Það er ekki auðvelt að fá þá vitneskju frá barninu sínu að það upplifi sig ekki í réttum líkama. Það er drullutöff, svo það sé bara sagt. Maður upplifir ákveðið áfall, syrgir einstaklinginn sem maður ól í heiminn og er að ala upp. Á sama tíma er maður að styðja einstakling inn í nýjan veruleika. En þegar maður er í þessari stöðu, er ekkert annað í dæminu en að vera í liði með barninu sínu, það er ekki spurt að því hvernig manni líður. Eitt af því sem bjargaði sálarheill okkar foreldranna þegar við vorum að fara í gegnum brimskaflana með transbarninu voru starfsmenn í grunnskólanum hennar. Það sem þau lögðu á sig, skilningurinn og hlýjan sem þau sýndu henni og ekki síst okkur foreldrunum. Þau gerðu sér grein fyrir því hversu mikið þetta reyndi á okkur foreldrana, sorgarferlið og allar skrítnu tilfinningarnar. Á sama tíma studdu þau dótturina inn í nemendahópinn sem nýr einstaklingur í sama líkama. Fyrir þessum góðu vinum okkar í skólakerfinu berum við ómælda virðingu, þið vitið hver þið eruð. Þetta er fólkið sem bera regnbogalyklakippurnar um hálsinn og hefur fánana vaðandi um allar koppagrundir. Af því að það elskar starfið sitt og sinnir nemendum sínum af allri þeirri alúð sem þau eiga til og rúmlega það. Í störfum mínum innan skólakerfisins hef ég oft fengið til mín foreldra í sömu stöðu og ég sjálf var, þá hef ég óhikað rætt mína reynslu og gert allt sem ég hef getað til að vera fólki stuðningur. Ég mun aldrei gleyma stórsigrinum sem við náðum með einum nemanda, því hann fór í skólasund. Undirbúningurinn tók marga mánuði og var samvinnuverkefni heimilis, skóla og sundlaugarinnar. Þar lögðust allir á eitt um að standa með nemandanum og styðja eins og okkur framast var unnt. Það er svo margt flókið sem gerist þegar börnin manns fara undir regnbogann og mætti Snorri Másson hafa samband við foreldra og hlusta á reynslu þeirra. Skólinn er eitt, búningsklefar annað, skólasund og íþróttir, vinahóparnir, nafnið, íþróttaæfingar, fataskápurinn, ættingjar sem hafa hinar og þessar skoðanir. Þetta eru bara nokkur dæmi. Megi regnbogafáninn flæða um alla grunnskóla og öll bókasöfn, því með fánanum sýnum við þeim nemendum stuðning sem eru í basli með sjálfa sig. Þau vita hvar þau eiga skjól og hvert þau geta leitað. Höfundur er bæjarfulltrúi, skólamanneskja og móðir barna sem standa undir regnboganum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar