Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar 23. september 2026 10:02 Um síðustu helgi fjallaði fréttastofa RÚV um þær miklu breytingar sem verða á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum um komandi áramót. Frá 1. janúar 2027 flytjast verkefni sem sveitarfélög hafa sinnt í áratugi yfir til ríkisins. Eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum færist til Umhverfis- og orkustofnunar en matvælaeftirlit til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna. Þegar ráðherrar málaflokkanna boðuðu til sameiginlegs blaðamannafundar fyrir rúmu ári og kynntu fyrirhugaðar breytingar var lagt upp með að einfalda stjórnsýsluna, auka skilvirkni og tryggja öflugra eftirlit. Fögur voru fyrirheitin, en raunveruleikinn sem blasir við í dag er annar. Vandræðagangur frá fyrsta degi Frá fyrsta degi hefur ferlið einkennst af vandræðagangi og skorti á verkstjórn. Verkefnisstjóri var kominn og farinn fyrir síðustu jól. Um svipað leyti var tilkynnt að samhliða yfirfærslu verkefnanna yrðu Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinaðar. Það eitt og sér er gríðarlega umfangsmikið verkefni og ljóst að tímaramminn var alltof þröngur. Á sama tíma hóf Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið vinnu við að öðlast yfirsýn og kortleggja núverandi kerfi – kerfi sem þetta sama ráðuneyti hafði tekið ákvörðun um að umbylta rúmum þremur mánuðum áður. Þarna var flestum ljóst – nema ef til vill forsvarsmönnum ráðuneytanna tveggja og forstjórum stofnananna sem falið hafði verið að leiða verkefnið – að stefnt væri út í móa. Verkefnið var of umfangsmikið, illa skilgreint, tíminn of skammur og skrefin sem átti að stíga of stór. Hestinum hafði einfaldlega verið stillt upp fyrir aftan vagninn. Þann 19. júní síðastliðinn samþykkti Alþingi lagabreytingarnar. Að teknu tilliti til allra þeirra athugasemda við áformin og annarra upplýsinga sem þá lágu fyrir er freistandi að álykta sem svo að tilhugsunin um langþráð sumarfrí hafi haft meira vægi hjá þingheimi en aukin skilvirkni og einföldun eftirlits. Fögur fyrirheit breytast í innantóm loforð Við samþykkt frumvarpsins voru starfsfólki heilbrigðiseftirlitanna gefin skýr fyrirheit um að óvissu yrði eytt án tafar, með loforðum um störf hjá ríkinu. Innan fjögurra vikna átti að liggja fyrir hversu mörg störf yrðu í boði hjá ríkisstofnununum tveimur og hvar þau yrðu staðsett. Sérstaklega var tekið fram að ráðningarbréf yrðu komin í hendur starfsmanna áður en sveitarfélögin þyrftu að senda út uppsagnarbréf. Í dag eru þessi fyrirheit orðin að innantómum loforðum. Starfsfólk fær uppsagnarbréf fyrir mánaðamót án þess að hafa fengið tilboð um starf hjá ríkinu eða skýr svör um framtíð sína. Til að kóróna óvissuna bárust nýlega fréttir um enn frekari tafir á upplýsingum um störf hjá Stofnun atvinnuveganna. Ástæðan ku vera breytt tímalína við ráðningu forstjóra. Á meðan bíður starfsfólk enn í lausu lofti. Kornið sem fyllir mælinn Rétt er að benda á að allan þennan tíma hefur starfsfólk heilbrigðiseftirlitanna haldið ótrautt áfram að sinna lögbundnum verkefnum sínum af mikilli fagmennsku. Heilbrigðisfulltrúar hafa sinnt eftirliti og tengdum verkefnum af fyllstu samviskusemi – þrátt fyrir að búa mánuðum saman við gríðarlega óvissu um eigið starfsöryggi og framtíð. Ætlast hefur verið til þess að þetta fagfólk sýni ábyrgð, stöðugleika og þolinmæði. Sömu sjálfsögðu kröfu verður að gera til þeirra sem bera ábyrgð á breytingaferlinu af hálfu stjórnvalda. Yfirlýst markmið var að eyða óvissu sem fyrst. Í stað þess hefur óvissan vaxið með hverjum degi og vex enn. Þegar uppsagnarbréfin berast í vikulok eða í byrjun þeirrar næstu er viðbúið að það verði kornið sem fyllir mælinn og reynslumikið fagfólk gefist upp á óvissunni og rói á ný mið. Hætti, fari og verði ekki með í svona asnalegu leikriti. Höfundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra og hefur starfað sem heilbrigðisfulltrúi síðan árið 2004 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun