Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar 18. apríl 2026 13:02 Skipulagsmál eru einhver mikilvægustu verkefni sem sveitarfélög hafa með höndum. Það er á forræði skipulagsyfirvalda að ráðstafa takmörkuðum gæðum þannig að lífsgæði verði betri. Þar skiptir öllu að fagleg og vönduð vinnubrögð séu höfð að leiðarljósi. Þá skiptir öllu máli að eiga gott samtal við hagsmunaaðila í nærsamfélaginu. Safna þarf saman ólíkum viðhorfum og gagnkvæm virðing þarf að vera fyrir hendi. Ekki síður þarf að ríkja traust milli ólíkra hagsmuna því slíkt kemur ávallt upp þegar úthluta þarf takmörkuðum gæðum. Það var því afar merkileg vinna sem fór fram á þessu kjörtímabili þar sem mynduð var þverpólitískur fimm manna starfshópur sem hafði það verkefni að „móta framtíðarsýn fyrir Kópavogsdalinn“. Hópurinn hélt um 20 fundi auk þess sem samtalsfundir voru með íbúum og hagsmunaaðilum. Hugmyndasamkeppni var haldin og hópurinn skilaði af sér skýrslu þann 12 febrúar 2024 sem var samþykkt af bæjarstjórn með öllum atkvæðum. Það er of langt mál að rekja ferlið eða efni skýrslunnar en niðurstöðu hópsins má skipta í megin atriðum í þrjá hluta. 1 Náttúran – Kópavogslækurinn Í honum miðjum rennur Kópavogslækur sem er nokkurs konar lífæð hans. Kópavogslækurinn hefur ekki alltaf verið jafn saklaus og hann er nú. Um aldir var hann vatnsmikil á og gat verið farartálmi þegar leysingar voru á vorin. Árið 1874 drukknuðu 2 börn bóndans Árna í Hvammkoti (síðar Fífuhvammi) á heimleið úr kirkju í Reykjavík. Matthías Jochumsson orti um þennan hörmulega atburð eftirminnilegt ljóð. Þar segir Dauðinn er lækur, en lífið er strá, skjálfandi starir það straumfallið á ------------------ Foreldrarnir tíndu upp barna sinna bein en báran kvað grátlag við tárugan stein. Þegar byggð í Kópavogi fór að vaxa í Kópavogi um miðja síðustu öld varð Kópavogslækur fórnarlamb frumkvöðulsandans og ekki var hugað að verndun hans. Hann fékk viðurnefni sem ekki verður nefnt hér. Hann breyttist úr árfarvegi í læk og ástand hans var orðið sorglegt. Niðurstaða starfshópsins var að hreinsun og endurlífgun Kópavogslækjar er alger forsenda þess að móta fallegan árfarveg og vera það bæjarprýði sem hann á skilið. Þetta verkefni hlaut óvænt byr í seglin þegar umsókn Kópavogsbæjar um þátttöku í svokölluðu Icewater áætlun ESB var samþykkt. Á annað hundrað milljónir fengust í verkefnið. Það er unnið í samvinnu við Kópavogsbæ og gengur vel. Það eru mörg dæmi þess að ár og fljót sem voru talin útdauða hafi fengið nýtt líf. Hægt er að nefna Thames í London og Signu sem rennur gegnum París sem hafa fengið endurnýjun sinna lífdaga. Ekki þarf að fara langt. Lax er veiddur í Elliðaánum. Hvers vegna ekki í Kópavogslæk? Það gæti orðið stór stund þegar það gerist. 2 Útivist og afþreying Kópavogsdalur er perla. Skjólsæll, sólríkur og þar kemur vorið fyrr og sumarið kveður síðar en á flestum öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Dalurinn á sér stóran sess í hugum Kópavogsbúa. Þar má sjá fólk á ferli um dalinn á yndislegum gönguleiðum að njóta lífsins í útiveru allt árið um kring. Kópavogsdalurinn er miðgarður okkar Kópavogsbúa líkt og íbúar í New York borg eiga sinn víðkunna Central Park – Miðgarð; víðáttumikla og afar vinsæla græna vin í miðri stórborginni. Tillögur starfshópsins fela í sér aðgerðir til að útivistar- og afþreyingarsvæði sem skapi almenna vellíðan og náttúruupplifun og stuðli að hreyfingu og útivist íbúa. 3 Íþróttasvæði Þriðji hlutinn sem lagt er til að skoðaður verði heildstætt er sá hluti Kópavogsdals sem er íþróttasvæðið. Hópurinn leggur til að hefja þarf endurskoðun á deiliskipulagi íþróttasvæðisins í samtali við Breiðablik, aðra hagsmunaaðila á svæðinu og íbúa bæjarfélagsins. Lagt er til að farið verði í hugmyndasöfnun eða samkeppni meðal arkitekta eða annarra um skipulagið. Gætt verður að byggingarmagn sé ekki óhóflegt og rími við ásýnd dalsins. Auk þess sem fagurfræði og ásýnd dalsins sé höfð í huga við hönnun nýbygginga. Ég er einn þeirra sem hef átt margar mínar bestu stundir í dalnum. Ég lék knattspyrnu með Breiðablik um árabil og þar er okkar heimavöllur sem geyma margar ljúfar stundir. Ég á enn erindi í dalinn oft í viku en fátt þykir mér vænna um en að sinna dómgæslu á stærsta íþróttamóti landsins, Símamótinu í þrjátíu ár. Þar er gleðin eins ósvikin og hún getur orðið. Það eru margir sem vita ekki að það eru yfir ein milljón heimsókna í Fífuna á hverju ári. Í þeirri skipulagsvinnu sem framundan er þurfa að fara saman sjónarmið grasótar og afrekskeppni. Það er ólíðandi að Breiðablik, sem hefur leikið yfir 50 leiki í Evrópukeppnum síðan 2010 þurfi að fara til Reykjavíkur þegar Kópavogsvöllur uppfyllir ekki vallarskilyrði til keppni á alþjóðavísu. Ný vinnubrögð í skipulagsmálum Það var afar ánægjulegt að vinna með starfshópnum. Ég vil trúa því að þegar upp er staðið þá viljum við öll – hvar í flokki sem við stöndum að við viljum búa til samfélag þar sem lífsgæði eru í forgrunni. Þetta er gerólík aðferðafræði heldur en sú sem hingað til hefur tíðkast iðulega í skipulagsmálum í Kópavogi. Það er til dæmis ekki hægt að hugsa sér ólíkari nálgun sem þessi er og svo hina sem var beitt við mótun nýs miðbæjar í Kópavogi. Þar var skipulagsvaldið á einhverjum mikilvægustu sameiginlegu eignum Kópavogsbúa afhent án nokkurra skuldbindinga til lóðarhafa og verktaka. Fyrsta hugmynd lóðarhafans varð síðan að deiliskipulagi. Við þekkjum alla þá hörmungarsögu. Það er kominn tími til að breyta forgangsröðun í skipulagsmálum í Kópavogi. Höfundur skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Hákon Gunnarsson Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar