Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar 17. apríl 2026 08:31 „Nú berast fréttir af einu fjalli enn til að bora og aka í gegnum til Siglufjarðar“, sagði góður vinur á árdögum Valkyrjustjórnarinnar. Við sammæltumst um að ábyrg stjórnsýsla og meðferð skattfjár tryggðu að fullrannsökuðum Fjarðarheiðargöngum yrði ekki frestað fyrir órannsökuð Fljótagöng. Annað og verra sýndi sig. Manngert áfall Þrátt fyrir mikilvægi heilbrigðisþjónustu, ráðast 80% lýðheilsu af öðru en henni. Þar vega stjórnmál þungt, til góðs eða ills. Sveitarstjórnir á Austurlandi hafa lengi átt í samtali við stjórnvöld um áherslur í samgöngumálum. Gagnkvæmt traust íbúa, kjörinna fulltrúa þeirra og stjórnvalda hefur borið samtalið uppi. Sama traust var forsenda þess að samtök sveitarfélaga á Austurlandi töluðu einróma um Fjarðarheiðargöng sem næstu göng á Austurlandi. Í krafti trausts kusu íbúar á Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Djúpavogi og Fljótsdalshéraði að sameinast og stofnuðu Múlaþing. Meðal forsenda; heilsársvegur um Öxi og Fjarðarheiðargöng, hverfatengingar nýs sveitarfélags, til aukinna og bættra samskipta. Þau snúast um atvinnusókn, aðföng heimila og fyrirtækja, afurðaflutning, íþróttir, tómstundir, skólasókn, fjölskyldu- og vinarækt, heilbrigðis- og félagsþjónustu o.fl. Að ógilda samgönguáætlun er bein aðför að lýðheilsu nærsamfélagsins. Áfallið er risavaxið, enda verstu gerðar; af mannavöldum. Þó hvorki af völdum óvita, unglings, né drukkins karls sem léku með eld, heldur stjórnvalds sem fer óvarlega með vald. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við var þess eðlilega vænst að áfram yrði unnið eftir einróma samþykktu, langtíma stefnumarkandi skjali, samgönguáætlun 2022. Stjórnvaldið molar þá hornsteina lýðheilsu sem eru upplifun af fyrirsjáanleika, skiljanleika, viðbragðsgetu og tilgangi. Það traðkar á fyrirsjáanleika sem grunni ákvarðana og fjárfestinga, rænir skiljanleika með valdi, laskar viðbragðsgetu einstaklinga og samfélaga og tortímir tilgangi gærdagsins. Fjármögnun Fljótaganga Að hætta við fullrannsakaðan gangakost og forgangsraða öðrum órannsökuðum er réttlætt með öryggi. Það á sér skýringar, en að öryggi seyðfirsks samfélags sé jafnframt fórnað er ekki réttlætanlegt. Öryggisbrestur Seyðfirðinga er af annarri stærðargráðu en Siglfirðinga sem hafa aðra flóttaleið. Fjarðarheiðarvegur í 600 m hæð er eina landleiðin til og frá Seyðisfirði. Öryggisbresturinn nyrðra er staðreynd, en eðli hans slíkt að sterk rök styðja fjármögnun Fljótaganga með öðrum hætti en tíðkast um samgöngumannvirki. Þar veldur náttúruvá, framskrið hluta fjallshlíðar og vegarins sem um hana liggur. Einmitt vegna skriðufalla, í miðjum heimsfaraldri, var Seyðisfjörður rýmdur í desember 2020. Það tókst vel, þökk sé því að Fjarðarheiðin var fær þá stundina. Slík framhlaup hafa orðið tíðari og þess má vænta áfram. Eðlilegt kann að vera að setja Fljótagöng í forgang, enda leiti Alþingi fjármögnunarleiða í samræmi við eðli vandans, en láti ekki öryggi annarrar byggðar gjalda fyrir. Leyfi lög um ofanflóðasjóð ekki ráðstöfun fjár til gangagerðar væri, með öryggi í huga, rökrétt og ábyrgt að breyta lögunum svo þau heimili slíkt. Sé það of tímafrekt má benda á að sett voru sérlög með fjármagni til að byggja öryggisgarða á Reykjanesi til varnar hraunstreymi af völdum annarrar náttúruvár. Skrif þessi byggja á umsögn minni um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2026-2040 og ræðu minni á 65. fundi sveitarstjórnar Múlaþings 11.02.2026. Ég treysti hæstvirtum innviðaráðherra til að endurskoða sitt mat og þingheimi að skila Austurlandi farsælli lausn í samræmi við Samgönguáætlun 2022 og Siglfirðingum Fljótagöngum með annarri fjármögnun. Heill og heilsa samfélaganna beggja kalla á slíkt og til eru færar leiðir að hvoru tveggja. Höfundur er læknir, situr í umhverfis- og framkvæmdaráði, er varafulltrúi í sveitarstjórn Múlaþings og er á lista VG og óháðra í Múlaþingi í komandi kosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Múlaþing Samgöngur Vinstri græn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Pétur Heimisson Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar