Byrja ekki að sekta á morgun Freyja Þórisdóttir skrifar 14. apríl 2026 11:02 Fjöldi bíla biðu eftir að komast í dekkjaskipti á Gúmmívinnustofunni í Skipholti síðasta október. Vísir/Anton Brink Frá og með 15. apríl ár hvert er ekki heimilt að aka á nagladekkjum. Þó mun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ekki byrja að beita sektum fyrr en um 25. apríl í fyrsta lagi eða tæpum tveimur vikum eftir lok nagladekkjatímabilsins.
Síðustu vikur hefur ástandið verið þannig að hálka hefur myndast víða á heiðum og því ekki tímabært að byrja að sekta ökumenn sem eru enn á nagladekkjum. Þetta segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu Vísis í dag. „Á morgun er sá dagur sem fólk á að skipta um nagladekk og við hvetjum alla til að í það minnsta panta tíma,“ segir Árni Friðleifsson og bætir við að það séu allir innan lögreglunnar meðvitaðir um að nagladekkjatímabilinu ljúki á morgun. Hann segir að það þó þeir byrji ekki strax að sekta sé ekki seinna vænna að panta sér tíma í dekkjaskipti enda „taki smá tíma að skipta um dekk á bifreiðaflota landsmanna“. Þá hvetur hann þá sem búi á höfuðborgarsvæðinu og eru ekki í neinum ferðahugleiðingum til að skipta sem fyrst enda sé færið gott á götum borgarinnar og hlýtt í veðri. Síðast í lok október flykktust landsmenn í dekkjaskipti en þá var útlit fyrir mikla snjókomu á höfuðborgarsvæðinu. Á sumum verkstæðum mynduðust langar raðir og dæmi eru um að fólk hafi setið í bílum sínum og beðið í þrjár klukkustundir.
Bílar Lögreglumál Nagladekk Tengdar fréttir Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Löng röð er að Gúmmívinnustofunni í Skipholti til að komast í dekkjaskipti. Norbert, starfsmaður verkstæðisins, segir líklega um þriggja klukkustunda bið. Hann segir mjög mikið hafa verið að gera í síðustu viku en ekki eins og í dag. 27. október 2025 08:47 Mest lesið Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Fleiri fréttir Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Sjá meira
Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Löng röð er að Gúmmívinnustofunni í Skipholti til að komast í dekkjaskipti. Norbert, starfsmaður verkstæðisins, segir líklega um þriggja klukkustunda bið. Hann segir mjög mikið hafa verið að gera í síðustu viku en ekki eins og í dag. 27. október 2025 08:47