Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Árni Sæberg skrifar 10. apríl 2026 14:42 Grindavíkurnefnd telur mikla óvissu enn uppi í Grindavík. Vísir/Vilhelm Grindavíkurnefnd mælir ekki með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur á meðan óvissa varir enn í bænum.
Þetta er meðal þess sem segir í nýrri rammaáætlun nefndarinnar, sem kynnt var í dag. Enn mikil óvissa Í samantekt skýrslunnar segir að Grindavíkurnefnd hafi verið falið það verkefni af forsætisráðherra að vinna rammaáætlun um endurreisn samfélagsins í Grindavík. Skýrslan beri þess merki að náttúruhamförum sé ekki lokið og mikil óvissa ríki um þróunina á næstunni. Þau leiðarljós sem sett eru fram verði því að skoðast í ljósi óvissu. „Allar ákvarðanir í endurreisnarferli þurfa að setja öryggi í fyrsta sæti. Um leið er nauðsynlegt að búa svo um hnúta að Grindavík taki markviss skref á þeirri vegferð að þar verði aftur blómleg byggð og farsælt samfélag. Í þessari rammaáætlun er þess freistað að feta jafnvægið milli ólíkra sjónarmiða og hagsmuna þannig að uppbygging og endurreisn eigi sér stað á forsendum öryggis og farsældar til framtíðar,“ segir í rammaáætluninni. Þá segir að tilgangur rammaáætlunarinnar sé eftirfarandi: Að meta stöðu samfélagsins og forsendur endurreisnar Að skilgreina leiðarljós, markmið og forgangsverkefni næstu ára Að skapa sameiginlega framtíðarsýn sem leiðarvísi fyrir nýja bæjarstjórn eftir kosningarnar 16. maí 2026 Að styrkja traust og fyrirsjáanleika fyrir íbúa, fyrirtæki og stjórnvöld Almannavarnir taki við af nefndinni Varðandi öryggi og áhættu segir að gera þurfi sjálfstætt og ítarlegt áhættumat samkvæmt viðurkenndum stöðlum, með skýrum upplýsingum fyrir almenning. Lagt er til að Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra taki við þeirri ábyrgð þegar Grindavíkurnefnd lýkur störfum. Öryggi eigi að vera í forgangi í öllum ákvörðunum um endurreisn, þjónustu, atvinnu og uppbyggingu. Móta þurfi sambærilegt fyrirkomulag fyrir eldgos og jarðhræringar og gildir um ofanflóð, meðal annars um fjármögnun og skilgreiningu á ásættanlegri áhættu og tryggja þurfi að viðbragðs- og rýmingaráætlanir séu virkar, æfðar og aðlagaðar mismunandi hópum, með skýrum merkingum og upplýsingum á fleiri tungumálum og með myndrænum leiðbeiningum. Þá segir að stjórnvöld þurfi að undirbúa viðbragðsáætlanir fyrir fleiri möguleg gos og hættusvæði á Reykjanesskaga, jafnvel samtímis og gera þurfi jarðkönnun á útivistarsvæðum utan þéttbýlis til að bæta öryggi. Fullorðið fólk geti tekið upplýsta ákvörðun Hvað viðvíkur húsnæðismál í bænum segir að fullorðið fólk geti tekið upplýsta ákvörðun um búsetu í Grindavík, en ekki sé mælt með að barnafjölskyldur flytji þangað á meðan óvissa varir. Heimila megi sölu og leigu húsnæðis, en með skýrum fyrirvara um óvissu og mögulega rýmingu og mikilvægt sé að eyða allri óvissu um tryggingavernd, bæði fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Virkum og traustum húsnæðismarkaði þurfa að koma sem fyrst á fót í Grindavík, bæði hvað varðar íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Bankar þurfi að vera reiðubúnir að veita lán til fasteignakaupa og uppbyggingar. Mæla ekki með að skólar verði opnaðir Þá segir varðandi skólamál og farsæld barna að félagsleg staða og líðan barna eftir rýmingu kalli á samræmda og markvissa íhlutun. Tryggja þurfi kerfisbundna eftirfylgni með stöðu þeirra til lengri tíma. Tryggja þurfi öryggi barna og draga markvisst úr hættu á líkamlegum og andlegum skaða, með sameiginlegu átaki allra hlutaðeigandi aðila. „Ákvarðanir um enduropnun skóla í Grindavík skulu teknar með hagsmuni og velferð barna að leiðarljósi. Ekki er mælt með að skólastarf hefjist fyrr en áhættumat gefur tilefni til.“ Ástæða sé til að skoða hvort svæðisbundin farsældarráð sveitarfélaga geti gegnt skýru hlutverki sem formlegur samráðs- og samhæfingarvettvangur í málefnum grindvískra barna. Rammaáætlunina má lesa í heild sinni hér.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Leikskólar Grunnskólar Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Sjá meira