Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. apríl 2026 08:34 Dánartilkynningin birtist í Morgunblaðinu í morgun. Svo virðist sem dánartilkynning hafi birst í Morgunblaðinu í morgun um mann sem er sprelllifandi. Maðurinn, Sölvi Guðmundarson, ber fregnirnar af sér í færslu á Facebook, í skilaboðum til ættingja og vina. „
Kæru ættingjar og vinir þið sem hafið verið að senda skilboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi,“ segir Sölvi í færslunni. Þá sakar hann „fárveika konu“ og móður hennar um að standa að uppátækinu. „Þetta er ekkert grín að eiga við svona andskotans viðbjóði meðan lögvaldið klórar sér í rassgatinu!“ segir hann. Önnur konan sem Sölvi nafngreinir er Íris Helga Jónatansdóttir, sem sjö menn hafa kært fyrir umsáturseinelti. Sölvi tjáði sig um málið í viðtali við Vísi, þar sem hann sagðist fyrst hafa leitað til lögreglu vegna áreitis af hálfu Írisar árið 2024 og þá lagt fram 700 skjáskot af skilaboðum frá henni. Að sögn Sölva voru hann og konan í árslöngu sambandi sem lauk í byrjun mars 2024. „Og rúmlega tveimur vikum seinna byrjaði þetta; endalausar netárásir og skilaboð frá fölskum aðgöngum á Facebook. Hún sendi líka skilaboð á dóttur mína. Í eitt skipti reyndi hún að skera á dekkin á bílnum mínum. Um páskana fór ég austur á Breiðdalsvík og fékk senda mynd frá nágranna mínum þar sem það var búið að maka sultu á veggina í íbúðinni minni,“ sagði Sölvi. Áreitið hélt hins vegar áfram. „Hún er búin að senda endalaust af skilaboðum á kærustuna mína, fólkið mitt og vini mína og segja að ég sé hættulegur ofbeldismaður. Flestir þeirra sem hún hefur sent á eru konur sem þekkja mig til margra ára og vita að þetta er ekkert til í þessum ásökunum,“ sagði Sölvi. „Þetta er komið langt út yfir öll mörk, og það tekur virkilega á sálina að standa í þessu. Það versta er að börnin mín eru að lenda í þessu líka. Dóttir mín var 16 ára þegar þetta byrjaði, og hún hefur farið mjög illa út úr þessu.“ Vísir hafði samband við Írisi á sínum tíma, sem hafnaði ásökununum sem um var fjallað en sagðist ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu. Það var RÚV sem fjallaði fyrst um dánartilkynninguna í morgun en í frétt miðilsins var einnig rifjað upp að þetta er ekki í fyrsta sinn sem dánartilkynning hefur verið birt í Morgunblaðinu um einstakling sem var á lífi. Morgunblaðið biðst afsökunar Á vef Morgunblaðsins kemur fram að fulltrúi blaðsins hafi rætt við Sölva í morgun og beðið hann afsökunar á birtingu þessarar röngu auglýsingar. Morgunblaðið og mbl.is biðja aðstandendur og vini Sölva, sem og lesendur sína alla, sömuleiðis afsökunar. „Rétt er að taka fram að auglýsingin barst Morgunblaðinu með hefðbundum hætti og ekkert gaf til kynna að um ósannindi væri að ræða. Slíkar blekkingar eru sem betur fer afar fátíðar en Morgunblaðið mun leita allra leiða til að finna út úr því hvernig þetta gerðist til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Þá verður leitað til viðeigandi yfirvalda um framhald málsins,“ segir á vef Morgunblaðsins.
Lögreglumál Fjölmiðlar Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira