„Þetta eru alltaf risastórir leikir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 12:31 Aron Sigurðarson leiðir KR líkt og síðustu ár. KR-ingar vilja, líkt og Valsmenn, forðast að falla út úr bikarnum við fyrstu hindrun. Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, þekkir betur til en margur í Egilshöll þar sem hans menn mæta Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Hann hefur ekki áhyggjur af vorbrag á leik innandyra og segir ávallt von á hörku og skemmtun þegar liðin eigast við.
Austanstormur sem gengur yfir landið gerir að verkum að leikur dagsins getur ekki farið fram á heimavelli KR í Vesturbæ líkt og til stóð. Allir bikarleikir dagsins hafa verið færðir inn í hallir víðsvegar um suðvesturhornið. „Maður hefði viljað spila leikinn á Meistaravöllum en veðrið er eins og það er, þannig að við tökum þetta bara í Egilshöllinni. Ég kannast ágætlega við mig þar og hef æft þónokkrum sinnum þar og kann vel við mig í Egilshöllinni.“ Verður vorbragur? Eftir langt undirbúningstímabil og leiki í undirbúningsmótunum er komið að fyrsta alvöru leik tímabilsins. Staðreyndin að leikur fari fram innandyra áður en mót hefst gæti hins vegar gert að verkum að tilfinningin verði aðeins önnur. Ákveðinn undirbúningstímabilsbragur verði á umgjörðinni. Mun það hafa áhrif? „Ég held að það eigi bara eftir að koma í ljós og fari eftir því hversu margir komi á leikinn. Ef þetta er hálftómt þá er þetta kannski aðeins undirbúningstímabilslegt. En ef það koma margir og er góð stemning er það aðeins annað,“ segir Aron og bætir við: „Þetta er í sjónvarpinu og það verða margar myndavélar þarna svo ég held að menn nái að gíra sig vel upp í þetta. Svo er þetta KR – Valur, hvort sem það er spilað í nóvember eða í júní eru það alltaf hörkuleikir.“ Erfitt að lesa í Val en uppleggið óbreytt Töluverðar breytingar hafa átt sér stað hjá Val í vetur. Leikmannahópur liðsins er að stórum hluta óbreyttur en nánast öllu þjálfarateyminu var skipt út, Hermann Hreiðarsson nýr aðalþjálfari og Bretinn Gareth Owen ráðinn yfir knattspyrnumál hjá félaginu. Valsmenn hafa hins vegar átt við mikil meiðsli að stríða í allan vetur og vart getað stillt upp sínu besta liði, auk þess sem nýjum þjálfara fylgja nýjar áherslur. Er erfitt að lesa í Valsliðið? „Já og nei. Valsliðið er hörkuvel mannað, með frábæran hóp og þeir sýndu það með öðru sæti á síðustu leiktíð. Það er kannski svolítil óvissa því maður hefur ekki séð allt of mikið af þeim en við þurfum alltaf að mæta 100 prósent í leikinn til að vinna hann, það er alveg klárt,“ segir Aron. KR-ingar munu þá ekki breyta út af sínum leikstíl. Þeir ætla að stjórna leiknum, pressa hátt og skemmta áhorfendum. „Við erum með okkar leikstíl og eins og öll góð lið fylgjum við honum. Við munum reyna eins og við getum að stjórna leiknum, halda vel í boltann, pressa þegar við töpum honum og spila skemmtilegan fótbolta. Það breytist ekkert, sama hvaða mánuður er, hvaða keppni það er eða hver andstæðingurinn er,“ segir Aron. Gott að fá alvöru leik Þegar hafa þrjú Bestu deildarlið fallið úr keppni í Mjólkurbikarnum síðustu daga. Fram féll úr leik fyrir Víkingi, Þór fyrir FH og ÍBV fyrir Þrótti. KR hefur mætt fjórðu deildarliðum á þessu stigi keppninnar síðustu ár en nú er fram undan þriðji Bestu deildarslagur 32-liða úrslitanna. Aron fagnar því að fá svo stóran leik áður en deildarkeppnin hefst. „Þetta eru alltaf risastórir leikir og það er frábært að fá alvöru leik fyrir tímabilið. Að þetta sé ekki eitthvað fjórðu deildarlið, með fullri virðingu, þá fáum við hörkuleik. Við verðum að mæta gíraðir, við erum klárir, í góðu standi og nánast meiðslalausir,“ segir Aron. Bæði lið vilji þá forðast það að bikarævintýri þeirra ljúki áður en Besta deildin hefst. „Ég held að bæði lið komi með það hugarfar inn í þennan leik. Þetta verður hörkuleikur. Það er mikið undir. Þetta er einn af tveimur stórum titlum á Íslandi. Við mætum vel gíraðir og ég held að við höfum sjaldan verið eins klárir í tímabil eins og akkúrat núna,“ segir Aron. Leikur KR og Vals hefst klukkan 17:00 í dag og fer fram í Egilshöll. Honum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
KR Valur Mjólkurbikar karla Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gri/Nja - Breiðablik | Nýliðar með meistara í heimsókn FH - Fram | Komnar á mikið flug Þór/KA - Víkingur | Enn í leit að fyrsta sigrinum Stjarnan - ÍBV | Hörkuleikur í Garðabæ „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Sjá meira