Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Lovísa Arnardóttir skrifar 31. mars 2026 12:42 Skúli Tómas starfar á Landspítalanum í Fossvogi en vinnuframlag hans hefur verið afþakkað frá því að ákæra var gefin út. Vísir Skúli Tómas Gunnlaugsson segir erfiða tíma fram undan. Hann segir ánægjulegt að fimm af sex málum hafi verið felld niður en það sé á sama tíma mikið áfall að ákært sé vegna eins þeirra.
Greint var frá því í morgun að Skúli Tómas verði ákærður fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögregla hafði andlát sex sjúklinga til skoðunar og felldi rannsókn fimm þeirra niður. „Við eigum erfitt með að skilja þá ákvörðun. Málið snýst um flókin læknisfræðileg atriði. Það er eðlilega erfitt fyrir ákæruvaldið að átta sig vel á slíku. Núna verður þó loksins hægt að fara yfir þetta heildstætt. Meta þetta eina mál sem eftir er af þeim staðreyndum sem liggja fyrir. Þær hafa því miður ekki fengið að koma fram enn þá þar sem við erum bundin trúnaði,“ segir Skúli Tómas í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir alla sem komu að rannsókn málsins sammála um að viðkomandi hafi réttilega verið settur á líknarmeðferð við innlögn. „Það segir sína sögu um ástand viðkomandi. Kerfisleg skráning, þ.e.a.s. svokölluð lífslokameðferð hafði ekkert með þetta að gera. Þetta var form en ekki efni. Lyfin sem voru notuð eru alvanaleg í líknarmeðferð og beitt eftir þörfum til að bæta líðan. Við trúum því að fyrir dómi upplýsist að enginn refsiverður verknaður hafi átt sér stað. Sannleikurinn mun sigra að lokum,“ segir hann að lokum í færslu sinni. Vinnur á Landspítala Rannsókn lögreglu á andlátum sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem Skúli Tómas starfaði, hófst árið 2021. Sem áður segir var rannsókn fimm þeirra felld niður en ákært vegna eins þeirra. Hann var sendur í leyfi vegna málsins í maí 2022 en sneri aftur til starfa á Landspítalanum í janúar árið eftir. Þá sinnti hann ekki sjúklingum þar sem hann var með takmarkað lækningaleyfi vegna málsins. Árið 2024 endurheimti hann lækningaleyfi og hóf þá að sinna sjúklingum á ný. Vinnuframlag hefur verið afþakkað eftir að ákæra var gefin út.
Læknamistök á HSS Heilbrigðismál Lögreglumál Dómsmál Eldri borgarar Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira