Læra nemendur meira ef skóladögum fjölgar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar 29. mars 2026 10:00 Í fréttunum á föstudag voru bornir saman fjöldi skóladaga í grunnskólum á Íslandi miðað við Norðurlöndin. Upplýsingarnar komu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samkvæmt ráðuneytinu eru 170 skóladagar á Íslandi, þar sem aðrir dagar, svo sem þemadagar, skólaslit og jólaskemmtanir, eru ekki taldir með. Þegar fjöldi skóladaga á Norðurlöndunum er skoðaður á veraldarvefnum koma fram sömu tölur og ráðuneytið gefur upp, nema fyrir Ísland. Skóladagar á Íslandi eru 180. Þetta vekur spurningar: ,,Eru engir sambærilegir uppbrotsdagar í skólum á Norðurlöndunum?” Jú, svo er. Ráðuneytið leggur áherslu á að fækka fjölda skóladaga á Íslandi en miðar við óbreyttar tölur annars staðar. Mikilvægt er að byggja slíkan samanburð á réttum forsendum. Við hvern eigum við að miða okkur við? Hvaða Norðurland er best að miða okkur við? Er betra að horfa til Danmerkur fremur en Finnlands, því dönsk börn eru lengur í skólanum? Finnar hafa komið best út úr PISA af öllum Norðurlöndunum á síðustu árum. Finnsk skólabörn eru 190 daga í skólanum á ári en íslensk börn 180 daga. Þrátt fyrir það eru finnsk börn í færri klukkustundir á dag í skólanum miðað við íslensk börn. Munurinn á milli viðveru í skólanum er því svipaður. Eistland kom mjög vel út úr PISA síðast, með 175 skóladaga á ári. Tengslin á milli dagafjölda og námsárangurs helst því ekki í hendur. Ef hugmyndin er að auka fjölda skóladaga sem á að vera lykillinn að betri námsárangri erum við á villigötum. Fjöldi rannsókna sýnir að gæði kennslu skiptir mun meira máli en magn kennslustunda eða fjölda skóladaga. Við verðum að byrja á að horfa inn á við og greina vandann áður en farið er í róttækar aðgerðir eins og að lengja skólaárið. Börnin eru oft á síðustu bensíndropunum í júní og lengra skólaár er ekki ávísun á betri námsárangur hjá börnum þessa lands. Gæði í kennslu skiptir meira máli en fjöldi skóladaga Gæði kennslu er einn lykilþátta í námsárangri nemenda. Kennarar hafa kallað eftir minni nemendahópum vegna aukinna áskorana inni í kennslustofunni. Kennararnir okkar þurfa stuðning. Í dag er oft ekki hægt að leggja fyrir eins krefjandi verkefni og áður fyrr. Mörgum íslenskum börnum skortir seiglu í námi og sum hver gefast fljótt upp. Við þurfum að byrja á því að finna leiðir til að leggja fyrir krefjandi verkefni og efla þrautseigju nemenda. Kennarar hafa jafnvel þurft að minnka kröfurnar þegar nemendur ráða ekki við verkefnin. Foreldrar þurfa að koma til aðstoðar. Við foreldrar verðum að gæta þess að börnin okkar fá ekki allt upp í hendurnar. Börnin verða að hafa fyrir hlutunum. Það skapar meiri seiglu. Hættum að pakka börnunum okkar inn í bómull og hjálpum þeim að vaxa. Fjölgum kennurum Margt bendir til þess að fagþekking innan skólanna sé að minnka með hverju árinu og fjölgun skóladaga mun ekki leysa þann vanda. Einn vandinn sem við glímum við er yfirvofandi kennaraskortur, sem nú þegar hefur áhrif á skólastarfið. Við þurfum að útskrifa fleiri kennara. Með því að lengja skólaárið fáum við ekki fleiri kennara til starfa í skóla landsins. Í stað þess að bera okkur saman við önnur lönd þurfum við frekar að skoða hvernig við getum styrkt skólana okkar. Styrkjum innviðina Markmiðið þarf að vera skýrt. Fjölgun skóladaga bjargar ekki gæðum í skólastarfi. Við megum ekki taka skyndiákvarðanir. Styrkjum innviði grunnskólans, eflum fagþekkingu í skólum og veitum kennurum þann stuðning sem þeir þurfa. Gerum kröfur til nemenda og fáum foreldra til aðstoðar. Við þurfum að hjálpast að sem samfélag að styrkja börnin okkar. Þetta eru málefni sem við í Viðreisn í Kópavogi leggjum ríka áherslu á í komandi kosningum. Eitt pennastrik og ein kerfislæg ákvörðun leysir ekki vandann. Gæði umfram magn er lykilatriði. Höfundur er í 4. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi og skólastjóri Hörðuvallaskóla Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Kópavogur Skóla- og menntamál Viðreisn Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar