Innviðagjald og hækkun vasks eyðileggi samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. mars 2026 20:52 Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustuna segir ríkisstjórnina eyðileggja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu með áformum sínum um gjaldhækkanir. Vísir/Arnar Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur það verið rætt í atvinnuvegaráðuneytinu að nýtt innviðagjald, sem bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn munu þurfa að greiða, gæti numið fimm þúsundum króna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna renna blint í sjóinn og að þetta muni tvímælalaust skaða greinina mikið.
Fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gær að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent. Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar sagði tilætlaða hækkun á virðisaukaskatti rauða línu en erfitt er að segja til um hver möguleg áhrif hækkunarinnar ofan í áhrif innviðagjaldsins verði. „Það er ekki gefið að ferðaþjónustan geti tekið allar skattahækkanir sem mönnum dettur í hug. Þarna verður ríkisstjórnin einfaldlega að velja hvort hún vilji hafa heildstæða gjaldtöku, náttúru- og innviðagjald, eins og kynnt var í stjórnarsáttmálanum, eða ætlar hún að eyðileggja samkeppnishæfni greinarinnar og rekstrarforsendur fyrirtækjanna enn frekar,“ sagði Jóhannes Þór í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir Samtök ferðaþjónustunnar ekki hafa heyrt neinar ákveðnar upphæðir nefndar en að ýmsir hafi nefnt að sársaukamörkin séu í kringum fimm þúsund krónur. Það byggi þó ekki á neinum mælingum. „Þannig að við rennum blint í sjóinn með upphæðir og útfærslur,“ sagði Jóhannes. Þegar saman kemur innviðagjaldið og hækkað gjald á baðlónin, er þetta þess eðlis að þetta muni skaða greinina mikið? „Tvímælalaust.“
Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Sundlaugar og baðlón Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira