Ógnir núna ekkert á við áhættu framtíðar Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar 29. mars 2026 09:02 Við lifum tíma aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Birtingarmyndirnar eru ýmsar, svo sem vopnuð átök milli ríkja, tollastríð sem skekja efnahagslíf heimsins, aukin samfélagsskautun og bakslag í mannréttindamálum. Þessi óheillaþróun og sú óvissa sem henni fylgir breytir eðlilega forgangsröðun ríkja, fyrirtækja og einstaklinga og hefur áhrif á daglegt líf okkar allra. Þegar við bregðumst við því sem brennur heitast á okkur hverju sinni verðum við þó jafnframt að gæta þess að missa ekki sjónar á heildarmyndinni. Í nýlegu áhættuyfirliti World Economic Forum (Global Risk Report 2026) má sjá að stærstu áhætturnar til skemmri tíma (þ.e. næstu 2 árin) tengjast einkum efnahagslegum og vopnuðum átökum ríkja, samfélagsskautun, upplýsingaóreiðu og spennu milli ríkja með tilheyrandi áhrifum á markaði, tækniþróun, virðiskeðjur og lagaumgjörð. Á meðan hafa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir er varðar náttúru og ósjálfbæra nýtingu hennar ekki lagast. Við, mannfólkið, höfum á síðustu 150 árum valdið stórfelldum breytingum á loftslagi með bruna jarðefnaeldsneytis, eytt vistkerfum, útrýmt dýrategundum og nýtt takmarkaðar auðlindir jarðar með óendurnýjanlegum hætti. Þetta hefur komið skýrt fram í hverri vísindaskýrslunni á eftir annarri og nú síðast í stöðuskýrslunni „State of the Global Climate 2025“ sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin gaf út í vikunni. Þegar horft er lengra fram á veginn (þó ekki nema til næstu 10 ára) stendur mest ógn af áhættum sem tengjast umhverfi, loftslagi og náttúru – þessar ógnir eru nú þegar raunverulegar og undirliggjandi þáttur í þeirri óvissu sem ríkir til skamms tíma. Með öðrum orðum: skammtímaóvissan er raunveruleg og brýn, en langtímaáskoranirnar hverfa ekki - þær bíða ekki á meðan við sinnum öðru. Bakslag í sjálfbærni ekki í boði Það er eðlilegt að óvissa samtímans hafi áhrif á forgangsröðun en hún má ekki leiða til þess að við leysum vandamál dagsins í dag á kostnað morgundagsins. Ábyrg forysta felst í því að taka ákvarðanir sem standast tímans tönn - efnahagslega, samfélagslega og umhverfislega. Þetta á ekki bara við um þjóðfélög heldur einnig einstök fyrirtæki. Til að komast í gegnum þann storm sem nú geisar þarf að taka ákvarðanir hratt og sýna sveigjanleika en til að stíga öldurnar sem framundan eru þurfa þær ákvarðanir að ganga upp í sjálfbærum heimi. Meðvitund um áhrif starfsemi á náttúru, loftslag og samfélög – og þær áhættur og tækifæri sem framtíðin ber í skauti sér – er grundvöllur rekstrarstöðugleika til langs tíma. Sjálfbærni skiptir máli. Fyrirtæki geta ekki valið á milli sjálfbærni eða samkeppnishæfni, markaðsforskots eða loftslagsmála, hagkvæmni eða umhverfismála. Fyrir orkufyrirtæki þjóðarinnar er bakslag í sjálfbærni einfaldlega ekki í boði. Sjálfbærni er samofin tilgangi okkar og framtíðarsýn um sjálfbæran heim, knúinn endurnýjanlegri orku.Við erum vön að horfa til langs tíma samhliða því að taka ákvarðanir um leið og þess þarf. Eins og önnur fyrirtæki þurfum við að vera samkeppnishæf, ráðstafa fjármunum okkar, fjármunum þjóðarinnar, af vandvirkni og skynsemi. Og eins og önnur fyrirtæki þurfum við að fara vel með þær auðlindir sem okkur er trúað fyrir og taka ábyrgð á þeim áhrifum sem starfsemin hefur. Framtíðin ræðst ekki af skammtímahugsun. Höfundur er forstöðumaður loftslags og sjálfbærni hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Loftslagsmál Landsvirkjun Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar Skoðun Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Börnin í Laugardalnum eiga betra skilið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Og þeir skoðra og þeir skoða og skora og skora á ný Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Eru vísindi „tabú“ í almannaumræðu? Loftslagsmál upplýst Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Belonging Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar
Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun