Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2026 11:31 Ýmsar úrbætur eru lagðar til í skýrslu GEV. Vísir/Egill Niðurstaða Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV, er að töluverður og alvarlegur misbrestur hafi orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vinnslu mála vegna vistunar barna utan heimilis. Nefndin hefur til áramóta til að innleiða úrbætur. Af 41 máli sem voru til vinnslu á umræddu tímabili völdu eftirlitsaðilar 23 mál til að kanna nánar og er niðurstaða athugunar að töluverður misbrestur hafi verið á skráningu gagna og varðveislu upplýsinga og að skortur hafi verið á að í gildi væru fóstur- eða vistunarsamningar allan vistunartímann. Tilkynning GEV. Þá var samkvæmt athugun ekki gengið úr skugga um að vistunaraðilar væru með tilskilið leyfi frá GEV eða að grundvöllur vistunar hafi verið tryggður á fullnægjandi hátt, það er að vistunin hafi verið með samþykki foreldra eða ekki. Ekki gætt að réttindum barna Þá kemur einnig fram að ekki hafi verið gætt á fullnægjandi hátt að réttindum barna við málsmeðferð, meðal annars varðandi skipun talsmanna og aðilastöðu barna 15 ára og eldri og ekki gætt nægilega að réttarstöðu hins foreldrisins þegar ráðstöfun beindist að öðru foreldrinu. Þá segir að einnig hafi verið misbrestur á því að í gildi væri áætlun um trygga umsjá barns og að skyldum varðandi umgengni við börn í fóstri og vistun væri fylgt að fullu. Þá var eftirliti og stuðningi við börn og fósturforeldra ekki sinnt á fullnægjandi hátt samkvæmt athuguninni. „Ljóst er að verulegir annmarkar hafi verið á málavinnslu þeirra mála sem athugunin náði til og að töluverður misbrestur hafi verið á því að kröfum í lögum og reglugerðum hafi verið fylgt. Afar mikilvægt er að barnaverndarþjónustan leggi áherslu á að efla innra eftirlit sitt í þeim tilgangi að stuðla betur að gæðum og öryggi þjónustunnar,“ segir í tilkynningu GEV. Ljúka úrbótum fyrir áramót Í eftirlitsskýrslu embættisins eru sett fram tilmæli um úrbætur og óskað eftir að úrbótaáætlun frá barnaverndarþjónustunni verði hafin og úrbótum lokið fyrir 1. janúar 2027. Í tilkynningu frá GEV segir að embættið hafi farið frumkvæðisathugun í febrúar 2025 á vinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar í þeim málum þar sem börn hafa verið vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga, ýmist í fóstur eða vistun á grundvelli 84. gr. barnaverndarlaga. Tilefni athugunarinnar hafi verið fjöldi og innihald þeirra ábendinga og kvartana sem borist höfðu stofnuninni vegna þessa, samtals sjö erindi. Athugunin afmarkaðist samkvæmt tilkynningu við vinnslu mála á tímabilinu 1. janúar 2024 til 18. febrúar 2025. Gagnaöflunin fól í sér gagna- og upplýsingabeiðnir til barnaverndarþjónustunnar, viðtöl við starfsfólk og stjórnendur og samtöl við úrtak fósturforeldra. Af 41 máli sem var til vinnslu á umræddu tímabili völdu eftirlitsaðilar 23 mál til að kanna nánar. Skýrsluna má nálgast hér. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Barnavernd Reykjanesbær Börn og uppeldi Fósturbörn Fósturfjölskyldur Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Af 41 máli sem voru til vinnslu á umræddu tímabili völdu eftirlitsaðilar 23 mál til að kanna nánar og er niðurstaða athugunar að töluverður misbrestur hafi verið á skráningu gagna og varðveislu upplýsinga og að skortur hafi verið á að í gildi væru fóstur- eða vistunarsamningar allan vistunartímann. Tilkynning GEV. Þá var samkvæmt athugun ekki gengið úr skugga um að vistunaraðilar væru með tilskilið leyfi frá GEV eða að grundvöllur vistunar hafi verið tryggður á fullnægjandi hátt, það er að vistunin hafi verið með samþykki foreldra eða ekki. Ekki gætt að réttindum barna Þá kemur einnig fram að ekki hafi verið gætt á fullnægjandi hátt að réttindum barna við málsmeðferð, meðal annars varðandi skipun talsmanna og aðilastöðu barna 15 ára og eldri og ekki gætt nægilega að réttarstöðu hins foreldrisins þegar ráðstöfun beindist að öðru foreldrinu. Þá segir að einnig hafi verið misbrestur á því að í gildi væri áætlun um trygga umsjá barns og að skyldum varðandi umgengni við börn í fóstri og vistun væri fylgt að fullu. Þá var eftirliti og stuðningi við börn og fósturforeldra ekki sinnt á fullnægjandi hátt samkvæmt athuguninni. „Ljóst er að verulegir annmarkar hafi verið á málavinnslu þeirra mála sem athugunin náði til og að töluverður misbrestur hafi verið á því að kröfum í lögum og reglugerðum hafi verið fylgt. Afar mikilvægt er að barnaverndarþjónustan leggi áherslu á að efla innra eftirlit sitt í þeim tilgangi að stuðla betur að gæðum og öryggi þjónustunnar,“ segir í tilkynningu GEV. Ljúka úrbótum fyrir áramót Í eftirlitsskýrslu embættisins eru sett fram tilmæli um úrbætur og óskað eftir að úrbótaáætlun frá barnaverndarþjónustunni verði hafin og úrbótum lokið fyrir 1. janúar 2027. Í tilkynningu frá GEV segir að embættið hafi farið frumkvæðisathugun í febrúar 2025 á vinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar í þeim málum þar sem börn hafa verið vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga, ýmist í fóstur eða vistun á grundvelli 84. gr. barnaverndarlaga. Tilefni athugunarinnar hafi verið fjöldi og innihald þeirra ábendinga og kvartana sem borist höfðu stofnuninni vegna þessa, samtals sjö erindi. Athugunin afmarkaðist samkvæmt tilkynningu við vinnslu mála á tímabilinu 1. janúar 2024 til 18. febrúar 2025. Gagnaöflunin fól í sér gagna- og upplýsingabeiðnir til barnaverndarþjónustunnar, viðtöl við starfsfólk og stjórnendur og samtöl við úrtak fósturforeldra. Af 41 máli sem var til vinnslu á umræddu tímabili völdu eftirlitsaðilar 23 mál til að kanna nánar. Skýrsluna má nálgast hér. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Barnavernd Reykjanesbær Börn og uppeldi Fósturbörn Fósturfjölskyldur Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira