Erlent

Missti hendi í mót­mælunum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Mótmælin ganga út á það að koma í veg fyrir að hægt sé að komast inn í skólann.
Mótmælin ganga út á það að koma í veg fyrir að hægt sé að komast inn í skólann. EPA

Fimmtán ára drengur missti höndina þegar hann mótmælti fyrir utan framhaldsskóla í Frakklandi. Enn halda mótmælin áfram og fer umfang viðbragða lögreglu vaxandi.

Pilturinn var að mótmæla í bænum Lens, sem er í norðurhluta Frakklands, að sögn Francois-Xavier Lauch, héraðsstjóra Pas-de-Calais. Á milli 150 og tvö hundruð mótmælendur hófu að kasta hlutum í lögregluna þegar óeirðalögreglan skarst í leikinn.

Ekki er víst hvort að hvellsprengja lögreglu hafi átt í hlut samkvæmt umfjöllun The Guardian. Lauch staðfesti að rannsókn á atvikinu væri hafin. Fjölskylda sextán ára nemanda í Tours, um tvö hundruð kílómetra austur af Nantes, hefur lagt fram kæru vegna lögregluofbeldis eftir að nemandinn missti sjón á hægra auga. Saksóknari sagði áverkana samræmast höggi frá gúmmíkúlu lögreglu.

Mótmælin hófust í lok september en á síðustu vikum hafa þau snúist út í óeirðir. Nemendur tóku að mótmæla vegna lélegra námsskilyrða, svo sem undirmönnunar kennara, yfirfullra kennslustofa og skólabygginga í niðurníðslu. Hundruðum skóla var lokað á mánudag eða stóð kennsla yfir í fjarkennslu vegna mótmælanna. Gert er ráð fyrir því að þúsundir muni taka þátt í mótmælunum í dag. 

Háskólanemar hafa einnig gengið til liðs við framhaldsskólanemana og var allt að fjörutíu háskólabyggingum lokað í gær. 

Taka á helstu kröfunum

Sébastien Lecournu, forsætisráðherra Frakklands, hefur falið ráðherrum sínum að taka á fimm helstu kröfum nemendanna. Meðal þeirra er að skipuleggja afleysingar fjarverandi kennara en á sumum stöðum hafa nemendur misst úr kennslu mánuðum saman vegna fjarverandi kennara. 

Ríkisstjórnin mun einnig skoða viðgerðir á niðurníddum skólabyggingum og endurskoða lengd skóladags Frakka sem er með þeim lengstu í Evrópu. Sumar bygginganna eru ansi illa farnar og lýsa nemendurnir vatnsleka í kennslustofum, kakkalökkum og óbærilegum hita á sumrin.

Yfir fimm þúsund manns, flestir unglingar, hafa verið handteknir í mótmælunum víðs vegar um Frakkland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×