Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2026 12:58 Danskir hermenn á Grænlandi. Danski herinn Þegar danskir hermenn voru fluttir til Grænlands í janúar höfðu þeir með sér sprengiefni. Þau átti að nota til að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands. Þetta var ef Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, myndi reyna að taka Grænland með hervaldi, eins og hann hafði gefið til kynna að kæmi til greina.
Hermennirnir báru einnig blóðpoka sem hægt yrði að nota ef þeir myndu særast í átökum við Bandaríkjamenn. Þetta hefur Danska ríkisútvarpið eftir heimildarmönnum sínum í danska hernum og innan stjórnvalda. Heimildarmenn í Þýskalandi og Frakklandi, sem sendu einnig hermenn til Grænlands, tóku undir þetta. Ráðamenn í þessum ríkjum óttuðust að Trump myndi gefa hernum þá skipun að taka Grænland með valdi en á þessum tíma talaði Trump ítrekað opinberlega um að Bandaríkin yrðu að eignast Grænland. Hann neitaði ítrekað að útiloka það að beita hervaldi til að eignast eyjuna. Danir og önnur ríki sendu hermenn í skyndi til Grænlands þar sem þeir stóðu fyrir heræfingum um tíma. Auknar áhyggjur vegna Venesúela Snemma í janúar jukust áhyggjur Dana af því að Trump myndi senda hermenn til Grænlands mjög. Það var eftir að Trump sendi hermenn til Venesúela þar sem þeir námu Nicolás Maduro, fyrrverandi forseta, á brott. Þetta þótti til marks um að Trump gæti staðið við hótanir sínar og að ríkisstjórn hans hegðaði sér ekki með sama hætti og fyrri ríkisstjórnir. Degi eftir að Maduro var numinn á brott nefndi Trump Gænland enn eina ferðina. Eftir það voru danskir, sænskir, norskir, franskir og þýskir hermenn sendir til Grænlands. Danir sendu einnig herþotur og Frakkar herskip á svæðið. Hermennirnir voru vopnaðir og það sama átti við um F-35 herþoturnar sem Danir sendu. Danir stóðu ekki í þeirri trú að þeir gætu stöðvað Bandaríkjamenn, ef þeir ætluðu sér að taka Grænland, en markmiðið var að gera það erfiðara og kostnaðarsamara. Telja Trump ekki hættan Hótanir Trumps í garð Grænlendinga og Dana og beiting tolla gegn ríkjum í Evrópu sem stóðu með Dönum og Grænlendingum, auk annarra atriða, komu verulega niður á samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu. Trump lét þó af hótunum sínum eftir að hann sagðist hafa gert einhvers konar samkomulag við Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem átti að gefa Bandaríkjamönnum allt sem Trump sóttist eftir varðandi Grænland. Enn hefur ekki komið í ljós hvað þetta samkomulag á að hafa falið í sér. Ráðamenn í Danmörku telja þó að Trump ágirnist enn Grænland.
Danmörk Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Donald Trump Hernaður Tengdar fréttir „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum. 17. mars 2026 15:43 Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu. 22. febrúar 2026 11:24 Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. 18. febrúar 2026 06:48 Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. 14. febrúar 2026 10:40 Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Miklar sviptingar hafa átt sér stað hvað varðar langvarandi gott samband Bandaríkjanna og Evrópu. Ráðamenn í Evrópu spyrja sig hvort þeir geti yfir höfuð enn treyst á Bandaríkjamenn. 13. febrúar 2026 16:08 Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Aðeins sautján prósent dönsku þjóðarinnar segjast líta á Bandaríkin sem bandalagsríki á meðan um sextíu prósent álíta Bandaríkin vera andstæðing samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Rétt rúm tuttugu prósent voru óviss eða kusu að svara ekki. Niðurstöðurnar þykja verulega sláandi. 3. febrúar 2026 08:57 Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01 Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Innlent Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira
„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum. 17. mars 2026 15:43
Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu. 22. febrúar 2026 11:24
Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. 18. febrúar 2026 06:48
Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. 14. febrúar 2026 10:40
Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Miklar sviptingar hafa átt sér stað hvað varðar langvarandi gott samband Bandaríkjanna og Evrópu. Ráðamenn í Evrópu spyrja sig hvort þeir geti yfir höfuð enn treyst á Bandaríkjamenn. 13. febrúar 2026 16:08
Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Aðeins sautján prósent dönsku þjóðarinnar segjast líta á Bandaríkin sem bandalagsríki á meðan um sextíu prósent álíta Bandaríkin vera andstæðing samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Rétt rúm tuttugu prósent voru óviss eða kusu að svara ekki. Niðurstöðurnar þykja verulega sláandi. 3. febrúar 2026 08:57
Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01