STEM námsvistkerfi: Lykill að öflugri STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar 17. mars 2026 12:00 Í nýlegri grein mennta- og barnamálaráðherra um menntun fyrir framtíðina er dregin upp skýr mynd: án öflugs menntakerfis verður ekki byggt upp þekkingardrifið samfélag. STEM menntun er lykilforsenda nýsköpunar, verðmætasköpunar og framtíðarfærni. Áhersla á eflingu STEM menntunar er bæði tímabær og mikilvæg. En öflug STEM menntun verður ekki til að sjálfu sér og skólakerfið eitt og sér getur ekki borið alla ábyrgð. Uppbygging framtíðarfærni er verkefni samfélagsins alls. Sú hugsun er einmitt kjarninn í svokölluðum STEM námsvistkerfum (STEM Learning Ecosystems), sem STEM Ísland hefur unnið að því að þróa og innleiða hér á landi síðastliðin fjögur ár. STEM námsvistkerfi byggja á þeirri einföldu en áhrifaríku hugmynd að nám á sér ekki aðeins stað innan veggja skólans, heldur ekki síður utan hans þar sem þekking verður að reynslu og nemendur tengja námið við raunveruleg viðfangsefni. Í slíkum vistkerfum vinna skólar, atvinnulíf, háskólar, söfn, sveitarfélög og einstaklingar saman að því að skapa fleiri tækifæri fyrir börn og ungmenni til að kynnast vísindum, tækni og nýsköpun og tengja námið við raunveruleg verkefni. Í raun mynda slík vistkerfi brú milli menntunar, samfélags og atvinnulífs. Á Íslandi hefur þessi nálgun þegar verið innleidd. STEM Húsavík er fyrsta STEM námsvistkerfi landsins og vinnur markvisst að því að efla STEM menntun með því að skapa fleiri tækifæri til náms og þátttöku í vísindum og tækni, bæði innan og utan skólastofnana. Nú hefur annað vistkerfi, STEAM Borgarbyggð, einnig skotið rótum. Árangurinn sem náðst hefur á Íslandi síðustu ár hefur vakið athygli víða í Evrópu og á Norðurlöndunum, þar sem aukinn áhugi er á vistkerfisnálgun við eflingu STEM menntunar. Slík nálgun er einnig í auknum mæli lögð til grundvallar í stefnumótun um STEM menntun á vettvangi Evrópusambandsins. Þegar samfélagið allt kemur að menntun breytast möguleikarnir. Nemendur fá fleiri tækifæri til að tengja námið við raunveruleg verkefni, prófa hugmyndir og sjá hvernig þekkingin nýtist í samfélaginu. Kennarar fá aukinn stuðning og tengsl menntunar og samfélags styrkjast. En slík þróun gerist ekki af sjálfu sér. Hún krefst skýrrar sýnar, ásetnings og samhæfingar þeirra fjölmörgu aðila sem koma að menntun og færniuppbyggingu í samfélagi. Ef Ísland ætlar að efla STEM menntun til framtíðar þarf því að skapa skilyrði fyrir slíkt samstarf og styðja þá þróun sem þegar er farin af stað með uppbyggingu STEM námsvistkerfa í samfélögum landsins. Fyrir fámenna þjóð eins og Ísland er þetta sérstaklega mikilvægt. Við höfum einfaldlega ekki efni á því að vinna hvert í sínu horni. Ef við ætlum að byggja upp þá færni sem framtíðin krefst verðum við að sameina krafta og vinna markvisst saman. „Saman erum við sterkari“ er ekki bara slagorð, heldur aðferðafræði menntunar til framtíðar. Höfundur er stofnandi STEM Íslands, forstöðukona STEM Húsavíkur og áhugakona um menntun til framtíðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar