Innlent

Holta­vörðu­heiði lokuð vegna slyss

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Holtavörðuheiði núna á fimmta tímanum. Myndin er úr vefmyndavél Vegagerðarinnra.
Frá Holtavörðuheiði núna á fimmta tímanum. Myndin er úr vefmyndavél Vegagerðarinnra.

Búið er að loka Holtavörðuheiði að nýju vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is.

Björgunarsveitir á Norðurlandi aðstoðuðu 25 manns niður af Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Meirihlutinn fékk gistingu í Reykjaskóla. Björgunarsveitir fóru aftur á heiðina í morgun til að losa bílana sem þar sátu fastir, alls festust fimm fólksbílar og einn flutningabíll í óveðri í gær.

Flutningabíll sat fastur fyrir hádegi í svokallaðri Hæðarsteinsbrekku og í nokkurn tíma komst ekkert farartæki fram hjá honum.

Fréttin er í vinnslu.

Veistu meira um málið eða náðir ljósmyndum á vettvangi? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×