Viðskipti innlent

Sýn ræðir við Símann um sölu á fjöl­miðlum

Kjartan Kjartansson skrifar
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Anton Brink

Síminn og Sýn hafa hafið viðræður um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna.

Í tilkynningu frá Sýn kemur fram að stjórn félagsins hafi tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal.

Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 m.kr. Tekjur miðlanna á árinu 2025 eru sagðar hafa verið um þrír milljarðar króna.

Samkvæmt skilmálaskjalinu skuldbinda aðilar sig til þess að vinna að því að undirrita kaupsamning á grundvelli þeirra skilmála sem þar koma fram. Viðskiptin eru háð niðurstöðum áreiðanleikakönnunar, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórna beggja aðila og samþykki viðeigandi eftirlitsaðila.

„Eins og áður hefur komið fram hefur stjórn Sýnar hf. haft framtíðarfyrirkomulag á rekstri fjölmiðlahluta félagsins til skoðunar. Sala umræddra miðla er liður í stefnumótandi endurskipulagningu rekstrar Sýnar sem miðar að því að einfalda starfsemi félagsins og styrkja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Með því að skerpa áherslur í rekstrinum er markmiðið að tryggja áframhaldandi framúrskarandi þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki og arðbæran rekstur til lengri tíma.“

Starfsmönnum Sýnar var tilkynnt klukkan níu um starfsmannafund sem verður haldinn klukkan 9:15.

Fréttin verður uppfærð. Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×