Pálmi til liðs við Sagafilm Lovísa Arnardóttir skrifar 6. mars 2026 13:48 Pálmu hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum og sjónvarpsgerð. Aðsend Pálmi Guðmundsson, fjölmiðla- og framleiðandi, hefur verið ráðinn til starfa hjá Sagafilm þar sem hann mun gegna starfi viðskipta- og verkefnastjóra. Pálmi var áður forstöðumaður þróunarmála hjá Árvakri en hætti þar um áramót.
Pálmi hefur ríflega 22 ára reynslu úr fjölmiðlum og markaðsmálum. Hann var dagskrárstjóri í Sjónvarpi Símans í tæp tíu ár. Þar á undan, frá 2007-2013, var hann framkvæmdastjóri dagskrár- og markaðssviðs 365 miðla, sem og markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins frá 2001-2006. Pálmi nam fjölmiðla- og rekstrarhagfræði við Walter Cronkite School of Journalism í Arizona State University. Hann hefur jafnframt sótt stjórnendaþjálfun (Advanced Management Program) hjá IESE University of Navarra í New York og í samningatækni og stjórnun hjá Harvard Law í Boston. Í tilkynningu um ráðninguna segir að í starfi sínu muni Pálmi móta og hrinda í framkvæmd bæði alþjóðlegri og innlendri sölustefnu Sagafilm, byggja upp og leiða sterk meðframleiðsluverkefni og finna nýjar tekjuleiðir í framleiðslu kvikmynda, sjónvarps og stafræns efnis. Samhliða verði lögð áhersla á að efla þjónustuframleiðslu á Íslandi og styðja við viðskiptaþróun og markaðslega stöðu fyrirtækisins. „Ráðningin endurspeglar skýra stefnu Sagafilm um að sameina skapandi, metnaðarfulla og fjölbreytta framleiðslu sterkri og skýrri viðskiptastefnu sem miðar að því að tryggja sjálfbæran vöxt hér heima sem og á alþjóðamarkaði,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Sagafilm, í tilkynningu. „Pálmi býr yfir víðtækri reynslu og hefur sýnt í verkum sínum sem stjórnandi sjónvarps- og útvarpsstöðva að hann hefur einstaka hæfni til að móta öflugar viðskipta- og markaðsstefnur fyrir nýstárlega og vandaða framleiðslu sem uppfyllir eftirspurn og kröfur á síbreytilegum markaði,“ segir Skarphéðinn.
Bíó og sjónvarp Vistaskipti Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Framkvæmdastjóri Sagafilm segir það alltaf erfitt að kveðja bíóhús en trúir því ekki að bíóhúsin muni hverfa fyrir fullt og allt. 2. febrúar 2026 22:01 Skarphéðinn til Sagafilm Sagafilm hefur ráðið Skarphéðinn Guðmundsson, fyrrverandi dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, sem framkvæmdastjóra Sagafilm á Íslandi. Skarphéðinn tekur við starfinu af Þór Tjörva Þórssyni. Skarphéðinn mun hefja störf snemma sumars. 11. mars 2025 12:56 Mest lesið Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Viðskipti innlent Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Neytendur Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Atvinnulíf Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Viðskipti innlent Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Viðskipti innlent Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Framúrskarandi fyrirtæki Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Sjá meira
„Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Framkvæmdastjóri Sagafilm segir það alltaf erfitt að kveðja bíóhús en trúir því ekki að bíóhúsin muni hverfa fyrir fullt og allt. 2. febrúar 2026 22:01
Skarphéðinn til Sagafilm Sagafilm hefur ráðið Skarphéðinn Guðmundsson, fyrrverandi dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, sem framkvæmdastjóra Sagafilm á Íslandi. Skarphéðinn tekur við starfinu af Þór Tjörva Þórssyni. Skarphéðinn mun hefja störf snemma sumars. 11. mars 2025 12:56