Viðskipti innlent

Verslun Kappahl í Smára­lind og net­verslun opnaðar á laugar­dag

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Allar verslanir Kappahl á Íslandi munu bjóða upp á fatnað fyrir konur, karla og börn, auk Newbie fyrir þau yngstu.
Allar verslanir Kappahl á Íslandi munu bjóða upp á fatnað fyrir konur, karla og börn, auk Newbie fyrir þau yngstu.

Verslun Kappahl í Smáralind verður opnuð klukkan 12, laugardaginn 14. mars næstkomandi. Á sama tíma verður opnar vefverslunin kappahl.is.

Frá þessu greinir í fréttatilkynningu frá LKA19 ehf., sem er umboðsaðili Kappahl, Newbie, Mango og Gina Tricot á Íslandi.

Verslunin í Smáralind verður í sama rými og Lindex var áður en félagið S4S ehf. tók við Lindex-vörumerkinu af LKA19 þann 1. mars síðastliðinn. LKA 19 ehf. er í eigu hjónanna Alberts Þórs Magnússonar og Lóu Dagbjartar Kristjánsdóttur.

„Þetta eru mjög spennandi tímamót,“ sagði Albert í samtali við fréttastofu í morgun. 

Hann segir fjölda fólks beggja vegna Atlantshafsins hafa unnið að opnun verslana Kappahl og Newbie hér á landi undanfarnar vikur og þá sé síðasta vörusendingin fyrir opnun væntanleg í hús á morgun.

Kappahl er sænskt vörumerki og 345 samnefndar verslanir að finna í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Póllandi og Bretlandi. Um er að ræða eitt af þekktustu tískuvörumerkjum Skandinavíu, sem selur föt fyrir konur, karla og börn.

Albert og Lóa segja óhætt að tala um fjölskyldufyrirtæki, enda sé ótrúlegur samhugur meðal starfsmanna.

Næsta verslun verður opnuð á Selfossi, nánar tiltekið laugardaginn 21. mars, og þá segir Albert að fregnir muni berast af opnun annarra versluna á næstunni; á Akureyri, Akranesi, Egilsstöðum, í Reykjanesi og í Kringlunni.

Allar verslanirnar munu bjóða upp á föt fyrir konur, karla og börn og þá má gera ráð fyrir sérstöku rými þar sem finna má vörumerkið Newbie, sem er fyrir þau allra yngstu.

Albert segir mikla vinnu hafa verið lagða í verkefnið og nefnir meðal annars að hér á landi séu staddir þrír útlitssérfræðingar á vegum Kappahl, til að sjá um uppsetningu verslunarinnar í Smáralind og þjálfa íslenskt starfsfólk.

„Við höfum fyllstu trú á því að við munum koma viðskiptavinum okkar skemmtilega á óvart,“ segir Albert. 

Hann staðfestir einnig að öllum fyrrverandi starfsmönnum Lindex hafi verið boðin áframhaldandi vinna.

„Það hafa allir starfsmennirnir þegið það að stíga þetta skref með okkur,“ segir hann. „Þetta er orðið ein stór fjölskylda sem heldur áfram undir nýjum merkjum og með bjartsýni að leiðarljósi. Við erum öll ótrúlega spennt fyrir framhaldinu.“


Tengdar fréttir

Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi

Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×