Borg sem leyfir öllum að blómstra Rúnar Freyr Gíslason skrifar 10. mars 2026 12:15 Gæði samfélaga fara eftir því hvort fólk fær að þroskast og blómstra á sínum forsendum, sama hvernig það er, lítur út eða hagar sér. Góð borg leyfir börnunum að finna sinn styrk, unglingunum að finna sinn farveg og sinnir hinum fullorðnu með góðri þjónustu og lægri álögum, sérstaklega þegar eitthvað bjátar á í lífinu. Íþróttir, frístundir, menning og velferð eru náskyldir málaflokkar sem skapa eina heild. Lífið séð úr ólíkum áttum Ég hef búið í Reykjavík allt mitt líf. Ég ólst upp í Breiðholtinu, bjó í miðbænum og Hlíðunum og við fjölskyldan eigum núna heima í Vesturbænum. Ég æfði fótbolta með Fram til nítján ára aldurs. Íþróttir kenndu mér aga, samvinnu og ábyrgð. Þær gáfu mér samfélag og tilgang. Ég var leikari í þrettán ár og síðar leikstjóri stórra sýninga. Ég hef séð hvernig leikhús getur opnað einstaklinga, byggt upp sjálfstraust og gefið fólki rödd. Í starfi mínu hjá RÚV hef ég unnið að tónlist, leikhúsi og stórum menningarviðburðum. Ég hef séð hvaða kraftur býr í öllu skapandi starfi, bæði hjá listamönnum og áhorfendum. Ég fór í áfengismeðferð og varð edrú árið 2012 með hjálp SÁÁ og góðs fólks sem trúði á mig. Ég á sex börn frá 8 - 27 ára og hef kynnst því hvernig er að vera foreldri í Reykjavík. Þessi reynsla hefur kennt mér að öll þurfum við að hafa tilgang, við þurfum að eiga samfélag og við þurfum að hafa tækifæri til að vaxa og þroskast. Forvarnir byrja ekki í neyðarúrræðum Við tölum oft um fíkn og geðrænan vanda þegar vandinn er orðinn alvarlegur. Þá þurfum við meðferð, stuðningsbúsetu, fjárhagsaðstoð og barnavernd. Stundum er líka talað um forvarnir, en oft sem einhverja sérstaka aðgerð. En forvarnir eru margvíslegar og oft hugsum við ekki um þær í því samhengi, að þær geti varið börn og ungmenni fyrir áföllum. Þær byrja á fótboltavellinum, í tónlistarskólanum, í leikhúsinu, í frístundamiðstöðinni og í sundlauginni. Þær byrja þegar barn finnur að það er gott í einhverju. Þegar unglingur finnur að hann á heima einhvers staðar. Þegar þetta mikilvæga fólk fær hvatninguna sem fylgir því að skapa, gera eitthvað í hópi. Íþrótta- og frístundastarf, menning og hreyfing eru ekki aukahlutir, þau eru grunnstoðir andlegrar og líkamlegrar heilsu. Skólinn gegnir lykilhlutverki Við gerum miklar kröfur um árangur í stærðfræði og íslensku. Það er mikilvægt, en það á ekki vera eina mælistikan. Skólinn á að hlúa að sköpunarkrafti, listum, hreyfingu og félagsfærni. Hann á að hjálpa börnum að uppgötva styrkleika sína hvar sem þeir birtast. Við eigum að tryggja öllum börnum og unglingum greiðan aðgang að leikhúsi, tónleikum, bókmenntum, listasöfnum, íþróttaaðstöðu og frístundastarfi. Stuðningur minnkar vandann Ég veit af eigin reynslu hversu auðvelt það er að villast. Ég veit líka hvað gerist þegar maður fær tækifæri til að byggja sig upp aftur. Íþróttir, menning og skapandi starf geta verið hluti af bata. Þau geta verið brú út úr einangrun, kvíða og vanlíðan. Við eigum að hugsa um velferð víðar en í neyðarúrræðum, við eigum að hugsa hana sem aðgang að hreyfingu, listum og boð um faglega aðstoð þegar þörf er á. Þetta hangir allt saman. Borg sem sér heildina Ég vil Reykjavík sem tengir saman íþrótta-, menningar- og velferðarmál og setur börn og unglinga í forgang. Um leið á að forgangsraða rétt og fara með fjármuni borgarbúa af ábyrgð. Það er í raun forsendan fyrir því að borgin geti sinnt sínu raunverulega hlutverki. Menning, hreyfing og andleg velferð eru ekki aðskildir málaflokkar, heldur þrjár hliðar á sama teningnum. Borg sem fjárfestir í því að fólk blómstri, sparar síðar í neyðarúrræðum. Borg sem hlúir að sköpun og hreyfingu styrkir samfélagið í heild. Reykjavík á að vera borg þar sem fólk fær að komast þangað sem það vill og þar sem við styðjum hvert annað á leiðinni. Höfundur skipar 5. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Rúnar Freyr Gíslason Mest lesið “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar